Nýársswing með handbremsu Jónas Sen skrifar 8. janúar 2025 07:00 Stórsveit Reykjavíkur flutti tónlist frá gullöld sveiflunnar. Sigurður Flosason stjórnaði. Sunnudagur 5. janúar í Eldborg í Hörpu. Jónas Sen Stórsveit Reykjavíkur fagnaði nýju ári í Eldborg með dagskrá helgaðri gullöld sveiflunnar – dýrðardögum djassins á árunum 1930 til 1950. Öllu var tjaldað til; eggjandi blásarar og hraustleg rytmasveit komu áheyrendum nánast til að dansa. Að vísu ekki alltaf. Einsöngurinn var nefnilega það sem stóð upp úr – bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt, eins undarlega og það kann að hljóma.
Lítt sannfærandi Bogomil Font (Sigtryggur Baldursson) virkaði fyrripart kvölds eins og illa gerður hlutur. Hann var í fremur hallærislegri múnderingu; með hatt, sólgleraugu, hvíta hanska og langan hvítan trefil. Það var fremur ankannarlegt. Ef markmiðið var að endurskapa anda liðinnar tíðar, var það ekki sannfærandi. Söngurinn hefði líka mátt vera safaríkari og tilþrifameiri; það var eins og enginn hefði tekið handbremsuna af. Bogomil var of stirður og ögn hjáróma á efra tónsviðinu. Hann fékk því yfirleitt kurteislegt lófatak en fremur en að uppskera ákafan fögnuð áheyrenda. Kannski var rödd hans bara ekki í góðu formi þarna um kvöldið. Hápunkturinn hjá honum var sennilega „Fly Me To the Moon“ eftir Bart Howard. Frank Sinatra gerði lagið ódauðlegt, og Bogomil tókst að líkja eftir kósí töktunum hans, en samt aldrei nægilega vel til að tónlistin kæmist virkilega á flug. Meira fjör var þegar hann settist við kongatrommurnar, en þá var hann miklu öruggari. Sigtryggur var trommuleikari Sykurmolanna í denn og maður gat ekki heyrt að hann hefði gleymt miklu síðan þá. Stefanía var frábær Hinn einsöngvarinn, Stefanía Svavarsdóttir, var hins vegar hrein upplifun. Hún mætti brosandi, klædd í glæsilegan kjól sem sómdi sér prýðilega á sviðinu. Röddin hennar var björt, skær og hljómmikil, og innlifunin var slík að maður gleymdi stað og stund. Augljóst er að hún er fædd til að syngja djass, svo skýrar voru laglínurnar og falleg blæbrigðin. Saman tóku þau Bogomil nokkra dúetta, en þeir komu flestir frekar illa út. „Let’s Call the Whole Thing Off“ eftir Gershwin-bræður var t.d. hálf misheppnaður. Það vantaði einlæga tengingu á sviðinu og útkoman var lítt annað en vandræðalegur hoppdans tveggja söngvara sem virtust ekki hafa undirbúið sig nægilega. Hljóðfæraleikur var afburðagóður Að öðru leyti var dagskráin hreint ekki leiðinleg. Stórsveitin var reyndar firnasterk; hljóðfæraleikurinn var í senn öruggur og mjúkur og mörg sóló voru leikin af miklum móð. Trommuleikurinn var hnyttinn og „frumstæður“ á alveg réttan hátt, og málmblásararnir settu salinn nánast á hliðina. Sigurður Flosason stjórnaði af fádæma fagmennsku, auk þess að vera frábær kynnir sem gladdi áheyrendur með skemmtilegum frásögnum. Augljóst er að hann ber djúpstæða ástríðu fyrir þesari tónlist. Umhugsunarvert er að sjá hversu lítils djassinn er metinn í dag miðað við hversu vinsæll hann var einu sinni. Hann er samt alltaf yndislegur, og þegar ég sit heima með slíka tónlist í eyrunum líður mér eins og allt sé í himnalagi, þótt svo sé ekki endilega í raunveruleikanum. Vonandi lifir djassinn um ókomna tíð. Niðurstaða Misjafn einsöngur, en skemmtileg tónlist og öflugur hljóðfæraleikur. Stórsveitin náði upp mikilli stemningu, en Bogomil hefði mátt vera öruggari. Stefanía var hins vegar frábær.
Gagnrýni Jónasar Sen Tónleikar á Íslandi Tónlist Harpa Tengdar fréttir Brostnar væntingar á Frostrósum Jólatónleikarnir Frostrósir nutu mikilla vinsælda á árum áður, en ég verð að viðurkenna að ég fór aldrei á meðan þeir voru árviss viðburður frá 2002 til 2013. Ekki heldur þegar hefðin var endurreist í fyrra. Ef marka má tónleikana á föstudagskvöldið í Eldborg í Hörpu, þá hefur maður ekki misst af miklu. 23. desember 2024 07:00 Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili fluttu jólalög í Langholtskirkju sunnudaginn 15. desember. Einsöngvari var Oddur Arnþór Jónsson. 18. desember 2024 07:00 Bríet olli vonbrigðum Söngkonan Bríet hélt hátíðartónleika í Silfurbergi í Hörpu á sunnudagskvöldið. Hún hefur flotta rödd, sem er bæði tær og hljómmikil. Hún söng líka allt af tilfinningu og lagði auðheyrilega sál sína í flutninginn. 11. desember 2024 07:02 Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Einu sinni var glæpamaður. Hann réðst á afgreiðslumann í smábúð í Bandaríkjunum þegar enginn annar var þar og heimtaði peningana í kassanum. Hann varð hins vegar fyrir vonbrigðum, því seðlarnir voru ekki margir. Þá læsti hann afgreiðslumanninn í bakherbergi, og batt hann og keflaði. Svo afgreiddi hann sjálfur til að fá meira í kassann, allt þar til lögreglan yfirbugaði hann nokkrum klukkutímum síðar. 25. nóvember 2024 07:03 Mest lesið „Veganismi er hvergi skilgreindur sem fullkomnun eða ekkert“ Lífið Dóttir Anítu Briem og Hafþórs komin með nafn Lífið Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Gagnrýni Harmleikur í Hollywood: Hús fræga fólksins fuðra upp Lífið Tóku sögufrægt 340 fermetra einbýli við Bergstaðastræti í gegn Lífið Þjóðin mætt að hreyfa sig og mömmurnar eru ekki skildar eftir út undan Lífið Hefur grátið óteljandi tárum yfir missinum Lífið Gott að sakna en verðum að hugsa í núinu Lífið Getuleysi á stóra sviðinu Gagnrýni Aron Can og fjölskylda í draumkenndu fríi Lífið Fleiri fréttir Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Brostnar væntingar á Frostrósum Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Bríet olli vonbrigðum Sjá meira
Brostnar væntingar á Frostrósum Jólatónleikarnir Frostrósir nutu mikilla vinsælda á árum áður, en ég verð að viðurkenna að ég fór aldrei á meðan þeir voru árviss viðburður frá 2002 til 2013. Ekki heldur þegar hefðin var endurreist í fyrra. Ef marka má tónleikana á föstudagskvöldið í Eldborg í Hörpu, þá hefur maður ekki misst af miklu. 23. desember 2024 07:00
Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili fluttu jólalög í Langholtskirkju sunnudaginn 15. desember. Einsöngvari var Oddur Arnþór Jónsson. 18. desember 2024 07:00
Bríet olli vonbrigðum Söngkonan Bríet hélt hátíðartónleika í Silfurbergi í Hörpu á sunnudagskvöldið. Hún hefur flotta rödd, sem er bæði tær og hljómmikil. Hún söng líka allt af tilfinningu og lagði auðheyrilega sál sína í flutninginn. 11. desember 2024 07:02
Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Einu sinni var glæpamaður. Hann réðst á afgreiðslumann í smábúð í Bandaríkjunum þegar enginn annar var þar og heimtaði peningana í kassanum. Hann varð hins vegar fyrir vonbrigðum, því seðlarnir voru ekki margir. Þá læsti hann afgreiðslumanninn í bakherbergi, og batt hann og keflaði. Svo afgreiddi hann sjálfur til að fá meira í kassann, allt þar til lögreglan yfirbugaði hann nokkrum klukkutímum síðar. 25. nóvember 2024 07:03