Þegar Samtök verslunar og þjónustu vita betur Erna Bjarnadóttir skrifar 21. desember 2024 10:03 Í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins birtist grein eftir háskólalektorinn Kristin Má Reynisson en hann er jafnframt lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). Í grein Kristins birtast skoðanir hans um alþjóðleg viðskipti og gengur hann svo langt að fullyrða að íslensk stjórnvöld viti betur en geri annað þegar að tollamálum kemur. Háskóli Íslands og Samtök verslunar og þjónustu Kristinn Már Reynisson er starfsmaður lagadeildar Háskóla Íslands en þar gegnir hann stöðu lektors og kennir að því er virðist félagarétt, alþjóðlegan skattarétt og umhverfisrétt kenndan við Evrópusambandið. Nú þekkir greinarhöfundur ekki hvaða reglur gilda hjá Háskóla Íslands um aukastörf fræðimanna en umhugsunarvert er að starfsmaður Háskóla Íslands skuli koma fram opinberlega fyrir hönd hagsmunasamtaka og fullyrða fullum fetum að íslensk stjórnvöld hagi stjórnsýslu sinni gegn betri vitund. Samtök verslunar og þjónustu og samkeppnisréttur Kristni Má er tíðrætt um virka samkeppni. Í grein hans segir m.a. að eitt „öflugasta verkfæri sem stjórnvöld hafa til að bæta hag neytenda er að tryggja virka samkeppni“ [...] og að „í virku samkeppnisumhverfi hagnist neytendur, því þeir geta valið hagstæðustu tilboðin, út frá verði og gæðum.“ Það verður ekki hjá því komist að benda á hversu hjákátlegt það er að lögfræðingur SVÞ kveði sér hljóðs um virka samkeppni þegar öllum er ljóst að vinnuveitandi hans, SVÞ, kann að sæta rannsókn Samkeppniseftirlitsins vegna yfirlýsinga Benedikts Benediktssonar, framkvæmdastjóra SVÞ, um að verð á ýmsum vörum muni hækka á næstu misserum. Orð umrædds framkvæmdastjóra í fjölmiðlum um verðhækkanir voru svo afdráttarlaus, ásamt orðum annarra forsvarsmanna fyrirtækja, að Samkeppniseftirlitið sá sérstaka ástæðu til að birta fréttatilkynningu þar sem fullyrt var að yfirlýsingar forsvarsmanna hagsmunasamtaka um verðhækkanir kunni að brjóta gegn samkeppnislögum. Nægir að vísa til leiðbeiningarreglna Samkeppniseftirlitsins í því sambandi svo og fyrri sektarákvarðana Samkeppniseftirlitsins í málum Bændasamtaka Íslands og Samtaka fjármálafyrirtækja. Um tolla og notkun þeirra í milliríkjaviðskiptum En víkjum nánar að skoðunum háskólamannsins um tolla á innflutta matvöru og alþjóðleg viðskipti. Í grein sinni fullyrðir Kristinn að með því að leggja tolla á innflutta matvöru hamli stjórnvöld virkri samkeppni á grundvelli verðs og gæða og látið að því liggja að álagning tolla sé með öllu óeðlileg – þá er fullyrt að „tollar eru klunnalegt verkfæri sem aðeins getur hækkað verð“. Greinarhöfundur er sérstakur áhugamaður um tolla og alþjóðleg viðskipti eins og ráða má af greinaskrifum undanfarin ár. Á skrifborði höfundar er kennslubók í alþjóðlegum vöruviðskiptarétti (e. international trade law) eftir Peter Van den Bossche, fv. prófessor í þjóða- og Evrópurétti við Maastricht háskóla, nú prófessor við Háskólann í Bern og fv. dómara við áfrýjunarnefnd hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni í Genf. Í bók hans kemur m.a. fram varðandi tolla að þeir séu lögmæt aðferð stjórnvalda til að ná tilteknum markmiðum – þar er t.d. vísað til ágreiningsmáls sem rekið var hjá Alþjóðlegu viðskiptastofnuninni gagnvart Indlandi frá 2008 en þar segir í lauslegri þýðingu: „Tollar eru lögmæt aðferð [stjórnvalda] til að framfylgja tiltekinni stefnu á sviði viðskipta eða til að ná öðrum markmiðum, s.s. til að afla ríkinu tekna. Í raun eru tollar skv. GATT samningnum frá 1994 sú aðferð sem mælt er með á meðan kvótar eru að meginstefnu til bannaðir.“ Ef tollar eru „klunnalegt verkfæri“ er Kristinn þá að leggja til upptöku innflutningskvóta? Í sömu kennslubók er tekið fram að kvótar séu mun skaðlegri en tollar af þeirri einföldu ástæðu að þegar kvótinn er fylltur (t.d. 10.000 tonn af osti) þá er innflutningur umfram það magn óheimill – m.ö.o. innflutningur stoppar. Tollar eru mun betri því að innflytjendur geta ávallt flutt inn tiltekna vöru ef þeir einungis greiða tollinn. Um alþjóðleg viðskipti Greinarhöfundur getur ekki annað en tekið undir þá skoðun Kristins að alþjóðleg viðskipti séu forsenda góðra lífsgæða á Íslandi. Það er rétt. En eitthvað hefur skolast til í alþjóðlegum hagfræðikenningum háskólamannsins. Alþjóðaviðskipti byggjast á hagfræðikenningunni um „comparative advantage“ en hún felur í sér að þær þjóðir sem framleiða tiltekna vöru með tiltölulega minnsta tilkostnaði eigi að sérhæfa sig í framleiðslu þeirrar vöru – m.ö.o. Ísland á að sérhæfa sig í því sem það framleiðir best á meðan aðrar þjóðir eiga að sérhæfa sig í öðru. Tökum dæmi. Ísland er með „comparative advantage“ í framleiðslu sjávarfangs miðað við aðrar þjóðir og því ætti Ísland að sérhæfa sig í að veiða fisk og flytja hann út. Með sama hætti ættu t.d. Spánverjar að sérhæfa sig í framleiðslu víns og flytja það út. En Ísland er vissulega ekki með „comparative advantage“ í framleiðslu matvöru, s.s. landbúnaðarvara, vegna landfræðilegrar legu og getur því ekki keppt við aðrar þjóðir. En þar koma önnur sjónarmið til sögunnar eins og byggðaþróun, fæðuöryggi, og sjónarmið sem varða þjóðaröryggi og að hafa vald á eigin matvælaframleiðslu til sögunnar. Þar er komin ástæðan fyrir því af hverju Ísland leggur tolla á innflutta matvöru. Það er líka ástæðan fyrir því að langflest önnur ríki (t.d. Bandaríkin) og ríkjabandalög ( t.d. Evrópusambandið), leggja tolla á innflutta matvöru. Af hverju ætti Ísland að afnema tolla ef aðrir gera það ekki? Það er hins vegar það sem Kristinn og SVÞ leggur til en slík nálgun myndi hafa gríðarlega skaðleg áhrif á hinar dreifðari byggðir landsins, svo vægt sé til orða tekið, svo ekki sé minnst á fæðuöryggi og þjóðaröryggi. Um hina betri vitund Gera verður alvarlega athugasemd að háskólamaðurinn skuli halda því fram íslensk stjórnvöld hagi stjórnsýslu sinni gegn betri vitund. Á hvaða rökum byggir þessi afstaða? Þau rök eru ekki að finna í títtnefndri grein. Þar er þvert á móti er fullyrt að „[v]irk samkeppni um að selja íslenska vöru út og erlenda vöru til Íslands ætti að [...] að vera keppikefli íslenskra stjórnvalda sem umhugað er um velsæld almennings.“ Nú er að svo að íslensk landbúnaðarstefna og eftir atvikum tollframkvæmd er að meginstefnu til í samræmi við landbúnaðarstefnu og tollframkvæmd annarra EFTA ríkja, t.d. Noregs og Sviss. Eru þessi lönd á rangri braut að mati háskólamannsins? Um er að ræða ein ríkustu lönd í Vestur-Evrópu og víðar þar sem laun eru há í alþjóðlegum samanburði. Af þeirri ástæðu leiðir að framleiðsla þessara landa, t.d. varðandi matvöru, getur ekki keppt við matvöru sem framleidd er í Suður-Evrópu eða jafnvel utan Evrópu þar sem laun í landbúnaði eru 30-75% lægri en laun í þessum EFTA-löndum. Niðurlag Á þessum veika grunni, sem hér hefur verið reifaður, byggir háskólamaðurinn fullyrðingu sína um að íslensk stjórnvöld „viti betur“ – er hægt að taka afstöðu þessa alvarlega? Íslensk sem og önnur stjórnvöld standa frammi fyrir fjölmörgum sviðsmyndum þegar kemur að tollum og innflutningi erlendrar matvöru. Íslensk stjórnvöld verða að gæta að matvælaöryggi, þjóðaröryggi, byggð um gjörvallt landið, o.fl. Sú sviðsmynd kallar á að tollar séu notaðir í alþjóðlegum viðskiptum ekki aðeins hér á landi heldur nær alls staðar í hinum vestræna heimi og víðar. Það er því ekkert óeðlilegt við það að íslensk stjórnvöld noti tolla – alveg með sama hætti og EFTA-ríkin, svo ekki sé minnst á ESB, nota tolla og hafa gert um áratugaskeið. Höfundur er verkefnastjóri hjá Mjólkursamsölunni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Erna Bjarnadóttir Verslun Mest lesið Áfengi eykur líkur á sjö tegundum krabbameina Sigurdís Haraldsdóttir Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun Kæra Hanna Katrín, lengi getur vont versnað Vala Árnadóttir Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Er biðin eftir ofurömmu á enda? Meyvant Þórólfsson Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson Skoðun Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnmálamaður metinn að verðleikum Þórarinn Snorri Sigurgeirsson skrifar Skoðun Magnea Marinósdóttir á brýnt erindi í borgarstjórn Hörður Filippusson skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg allra Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Evrópa lætur ekki undan hótunum Trumps um Grænland Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Rödd ungs fólks Nanna Björt Ívarsdóttir skrifar Skoðun Eflingarfólk! Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Lesblindir sigurvegarar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Steinunn er frábær! Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar Skoðun Þegar fullveldi smáríkja er ekki lengur sjálfsagt Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Rasismi er ekki „hægri“, hann er bara bjánalegur Elliði Vignisson skrifar Skoðun Byggjum fyrir fólk Hafdís Hanna Ægisdóttir,Hjördís Sveinsdóttir,Silja Elvarsdóttir skrifar Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Hvalveiðar í sviðsljósinu Elissa Phillips skrifar Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar Skoðun Frítt í Strætó og sund – Með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mun samfélagsmiðlabann skaða unglingsdrengi? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarbandalag verklausa vinstrisins Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Hver spurði þig? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þöggunin sem enginn viðurkennir Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Borgarlína á Suðurlandsbraut: 345 stæði hverfa eða ónýtast Friðjón Friðjónsson skrifar Skoðun Að byggja upp flæði og traust í heilbrigðiskerfinu Sandra B. Franks skrifar Skoðun Ég elska strætó Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Braskmarkaðurinn Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að reka byggingarfélag Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Þúsund klifurbörn í frjálsu falli Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar engin önnur leið er fær Rebekka Maren Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun
Skoðun Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir,Gunnar Örn Stephensen skrifar
Skoðun Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Nýsköpun drifin áfram af trausti og samfélagslegri ábyrgð Jón Magnús Kristjánsson skrifar
Skoðun Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson skrifar
Skoðun Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Hrönn Svansdóttir,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Markmið: Fullkomnasta heilbrigðisþjónusta sem tök eru á að veita Steinunn Þórðardóttir skrifar
Lygar, ýkjur, svik og hótanir – dapurlegir fyrstu dagar nýs menntamálaráðherra í embætti Ragnar Þór Pétursson Skoðun