Aston Villa komst aftur á sigurbraut þegar liðið lagði Brentford að velli, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Villa í níu leikjum, eða síðan 22. október.
Þrátt fyrir slæmt gengi að undanförnu er Villa í 7. sæti deildarinnar með 22 stig, aðeins fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti.
Brentford er í 9. sæti deildarinnar með tuttugu stig. Aðeins eitt þeirra hefur komið á útivelli.
Morgan Rogers kom Villa yfir á 21. mínútu með góðu skoti í fjærhornið. Sjö mínútum síðar fiskaði Ollie Watkins vítaspyrnu sem hann skoraði sjálfur úr.
Matty Cash kom Villa svo í 3-0 á 34. mínútu. Þrjú mörk á þrettán mínútum hjá heimamönnum.
Mikkel Damsgaard minnkaði muninn fyrir Brentford á 54. mínútu en nær komust gestirnir ekki.