Albert frá í mánuð og missir af landsleikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2024 17:33 Albert Guðmundsson hafði byrjað mjög vel með liði Fiorentina. Getty/Giuseppe Maffia Albert Guðmundsson mun líklegast ekki snúa aftur í íslenska landsliðið í nóvember þar sem meiðsli hans um helgina munu halda honum frá keppni næstu vikurnar.
Albert meiddist snemma leiks í 6-0 sigri á Lecce í Seríu A um síðustu helgi. Hann fór af velli strax á níundu mínútu leiksins. Það þurfti að bíða í nokkra daga til að bólgan hjaðnaði þannig að hægt væri að skoða almennilega hvað hefði gefst fyrir íslenska framherjann. Fiorentina hefur nú staðfest það að hann tognaði það illa í vöðfestingu á hægra læri að hann þarf um mánuð til að ná sér góðum. Albert hefur þegar hafið endurhæfingu en meiðsli eins og þessi þýða jafnan það að leikmaður er frá í fjórar til sex vikur. Albert kom til Fiorentina í haust og hefur byrjað mjög vel með þrjú mörk í fyrstu fimm leikjum sínum. Hann hefur ekki spilað með íslenska landsliðinu síðan í mars en eftir að hann var sýknaður af nauðgun þá mátti velja hann á ný í landsliðið. Albert kom þó ekki inn í síðasta verkefni og verður nú væntanlega ekki heldur með þegar Ísland mætir Svartfjallalandi og Wales 16. og 19. nóvember næstkomandi. Albert missir líka af mörgum leikjum Fiorentina á næstunni.
Ítalski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira