Viðskipti innlent

Svekktur en ekki hissa á færri í­búðum í byggingu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir ekki koma á óvart að íbúðauppbygging hafi dregist saman miðað við núverandi vaxtaumhverfi.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, segir ekki koma á óvart að íbúðauppbygging hafi dregist saman miðað við núverandi vaxtaumhverfi. Vísir/Vilhelm

Forseti ASÍ segir svekkjandi að íbúðauppbygging hafi dregist saman um tæp sautján prósent á síðasta árinu. Það komi hins vegar ekki á óvart miðað við núverandi vaxtaumhverfi og verðbólgu.

Greint var frá því í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í morgun að alls hafi verið tæplega sautján prósent færri íbúðir í byggingu á landinu í september en á sama tíma á síðasta ári. Sagði í tilkynningunni að ljóst megi vera að framkvæmdir séu að hefjast á of fáum íbúðum ef ekki eigi að verða frekari samdráttur á nýjum íbúðum.

„Þetta er því miður ekkert að koma okkur á óvart. Við erum búin að sjá að þetta hefur verið á þessari leið í nokkurn tíma. Þess vegna höfum við verið í virku samtali við opinbera aðila um það að spýta í lófana,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Hann segir ASÍ ekki sjá neitt í kortunum sem bendi til að þetta fari að lagast.

„Vextirnir eru eitt, lóðaskortur er annað. Við sjáum ekki að þetta lagist öðruvísi en það verði sett eitthvað alvöru átak í að fara að fjölga íbúðum.“

Óboðlegt að lánavextir séu upp undir fimmtán prósent

Borið hefur á því að nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljist ekki eða seljist mjög hægt. Finnbjörn segir það ekki koma á óvart.

„Íbúðir í dag eru komnar upp fyrir greiðslugetu almennings. Það hefur sýnt sig að undanförnu að þeir sem eru að kaupa eru atvinnufjárfestar,“ segir Finnbjörn.

Það sé óboðlegt fyrir kaupendur að lánavextir séu allt upp í fimmtán prósent.

„Á meðan stýrivextirnir eru með þessum hætti bæði selst ekki og menn eru ekki tilbúnir til að halda áfram eða fara af stað með nýjar íbúðir.“

Lögð var mikil áhersla á það við gerð kjarasamninga í vor að stjórnvöld tryggðu húsnæðisframboð og uppbyggingu íbúða.

Það hlýtur að vera svekkjandi að þetta sé staðan?

„Auðvitað er það það, það er ekkert að fara af stað.“


Tengdar fréttir

Færri í­búðir í byggingu en fyrir ári

Alls voru 16,8 prósentum færri íbúðir í byggingu á landinu í september en á sama tíma á síðasta ári. Ljóst má vera að framkvæmdir eru að hefjast á of fáum íbúðum ef ekki á að verða frekari samdráttur á nýjum íbúðum.

Ringulreið á lánamarkaði

Afborgun á ríflega fjörutíu milljón króna láni hækkar um allt að kvartmilljón á ári eftir vaxtahækkun bankanna. Lántaki sem þurfti að færa sig úr óverðtryggðu láni í verðtryggt segir ringulreið ríkja og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×