Fótbolti

Lagði upp mark tveimur mínútum eftir að hann kom inn á

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Gent gerðu góða ferð til belgísku höfuðborgarinnar í dag.
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Gent gerðu góða ferð til belgísku höfuðborgarinnar í dag. getty/Isosport

Andri Lucas Guðjohnsen lét til sín taka þegar Gent sigraði Club Brugge, 2-4, í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Andri kom inn á sem varamaður á 62. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar lagði hann fjórða mark liðsins upp fyrir Omri Gandelman.

Andri hefur leikið sex deildarleiki með Gent á tímabilinu, skorað eitt mark og nú gefið eina stoðsendingu.

Gent keypti íslenska landsliðsmanninn frá Lyngby í sumar. Hann varð næstmarkahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Með sigrinum í dag komst Gent upp fyrir Club Brugge og í 3. sæti deildarinnar. Liðið er með þrettán stig, þremur stigum minna en topplið Genk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×