Innlent

Maður sem var leitað við Vík fannst látinn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hann fannst látinn í gærkvöldi. 
Hann fannst látinn í gærkvöldi. 

Karlmaður fannst látinn í gærkvöldi en lögreglan hafði leitað hans frá því á mánudag. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að rannsókn fari fram hjá Lögreglunni á Suðurlandi.

Ekki er þó talið að lát hans hafi borið að með saknæmum hætti. 

Fram kom í fréttum í vikunni að maðurinn var búsettur í Vík og fór í vikunni fram víðtæk leit að honum í kringum bæinn. Leit var svo frestað á þriðjudag. Ekki höfðu þá fengist neinar nýjar vísbendingar um hvarf hans.  Síðast sást til hans um nótt síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×