Viljum við útrýma kristni úr þjóðlífinu? Gunnlaugur Stefánsson skrifar 16. september 2024 10:00 Það er verið að útrýma kristni úr þjóðlífinu. Kristnifræði sem námsgrein hefur t.d. að mestu verið aflögð í grunnskólanum undir því yfirskini að sé óæskilegur áróður. Starfslið skólanna þorir tæpst að fara með börnin í heimsókn í kirkjurnar af ótta við ofsóknir frá háværu öfgafólki. Þá telja Kirkjugarðar Reykjavíkur gott að afmá kristinn kross úr merki sínu til að hressa upp á orðspor sitt. Þjóðkirkjan hefur lengi liðið fyrir hatursorðræðu og nánast verið í fjölmiðlabanni árum saman varðandi fréttaflutning af blómlegu starfi sínu. Fjölsóttir kirkjudagar Þjóðkirkjunnar í Lindarkirkju fyrir stuttu er táknrænt dæmi um það. Þorgeir Ljósvetningagoði taldi mikilvægt að þjóðin hefði ein lög og einn sið til að verja friðinn í landinu, þegar kristni var lögtekin á Íslandi árið 1000. Þannig eru lög og trú samofin. Þjóðskipulag alls staðar í veröldinni hefur þróast um aldir fram á okkar dag með því að trúarbrögðin næra lögin. Táknrænt um þetta er, að Alþingi er sett á haustin með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Þá er kristinn kross í þjóðfánum Norðurlandanna til merkis um að þessi lönd byggja lög og menningu á kristnum gildum. Svo er dagatalið með sínum kristnu hátíðum vitnisburður um að við erum saman í einum sið. Er það tilviljun að einmitt Norðurlöndin hafa lengi verið þekkt af velferð og mannúð, mannréttindum og jafnræði í samfélagi þjóðanna? Gæti verið að kristin áhrif ráði mestu um það? Núna er Þjóðkirkjan aðskilin frá ríknu. En viljum við aðskilja kristni og þjóðlíf? Í útvarpsviðtali sagði mannfræðingur, sem hafði rannsakað mannlífið í Íslendingabyggðum vestanhafs, að örsnauðir Íslendingar, sem flúðu land og settust þar að, hefðu fljótlega umfram aðra verið kallaðir til forystu og opinberra trúnaðarstarfa í nýjum heimkynnum af því að þeir voru læsir og skrifandi. Hverju má þakka það? Mannfræðingurinn svaraði: Fermingunni. Allir voru skyldugir til að fermast á Íslandi og urðu að kunna að lesa til þess að geta fræðst um trúna og ræktað sitt persónulega samband við Guð. Prestunum var falið að sjá um fræðsluna. Þannig var kirkjan eini barnaskóli landsins um aldir. En nú þykir ótækt, og jafnvel talið brot á mannréttindum, að ræða um Guð í skólanum. Hefur það orðið til farsældar fyrir börnin og líður þeim þess vegna betur? Er líklegt að almennt læsi á meðal barna og unglinga hafi fyrr á öldum í sárri fatækt og örbirgð þjóðar verið meira en nú er? Allan minn barnaskóla lét kennarinn okkur 30 börnin í bekknum hefja hvern einasta kennsludag með því að biðja saman Faðir vor. Svo var kristnifræði ein aðalnámsgreinin þar sem áhersla var á Bíblíusögur og utanbókarlærdóm. Síðar í gagnfræðiskóla var öllum nemendum skólans fyrir jólin safnað saman á sal þar sem sóknarpresturinn las jólaguðsjallið, fór með bæn og Faðir vor. Ég hef ekki heyrt af neinum sem varð meint af þessum tiltækjum, en sjálfur á ég um þetta fallegar minningar og reyndist mér haldreipi síðar, ekki síst þegar á móti blés í lífinu. Mörg skólasystkina minna hafa haft orð af sömu reynslu. Hvaða kjölfestu eiga börnin núna á andans grunni? Er grunnskólinn orðinn að andlausri og siðalausri stofnun? Er þar bannað að syngja eða kenna börnunum þjóðsönginn af því að hann er kristinn bænasálmur? Svo skrifar prófessor í félagsfræði í HÍ bók og segir að samfélagið sé á slæmri vegferð, grafið sé undan félagslegu heilbrigði, einmannaleiki eykst með kvíða, kulnun og misskiptingu auk þess að samhugur og gagnkvæm hjálpsemi sé að veikjast. Er við öðru að búast, ef þjóðin glatar sambandi við andlega næringu sína? Kristinn boðskapur er um ást og umhyggju, mildi og umburðarlyndi, en ekki síður ábyrgð og virðingu við mannhelgi, þetta sem gefur lífinu tilgang og von. Hvernig í ósköpunum má snúa málum svo á hvolf, að eftirsóknarvert verður að útrýma slíkum gildum úr þjóðlífinu? Það þarf slóttuga spunameistara í sauðagæru til að gera það. Samt er hrópað hástöfum eftir meiri kærleika í samfélaginu. Viljum við fórna kristnum gildum til að þóknast útlendingum ólíkra trúarbragða sem hér setjast að? Er það þannig sem við umgöngust aðrar þjóðir í fjarlægum löndum ef við setjumst þar að, krefjast þess að öllu verði breytt af því að mínir siðir eru öðruvísi? Er það aflvaki fjölmenningar? Líkist það ekki fremur ofbeldi en mannréttindum? Trúfrelsið er áfram í fullu gildi, en í ár eru 150 ár síðan það var lögtekið á Íslandi. Það er einmitt fólgið í kristni að efla frelsi, virða ólíkar skoðanir og rækta umburðarlyndi. Athyglisvert er, að fólk sem þjáist af fíkn vegna ofneyslu áfengis og eiturlyfja leitar í æðruleysisbænina sér til bata og frelsis, ákallar Guð til að öðlast frið og tilgang í sálina. Gæti það líka verið gott fyrir laskaða þjóðarsál? Í ágætri bók, Trú og vald í mannkynssögunni, telja höfundarnir, Jónas Elíasson, verkfræðingur, og Pétur Pétursson, guðfræðingur, að valdi erfiðleikum í sambúð fólks af Islam trúar og kristinnar menningar, að fyrirgefningin hefur aldrei fest rætur í sið Islam, þar sem endurgjaldslögmálið auga fyrir auga og tönn fyrir tönn gildir. Aftur á móti er fyrirgefningin með iðrun og yfirbót kjölfestan í kristni og þar með í menningu okkar réttarríkis. Þetta er umhugsunarverð kenning, en sýnir hve mikilvægt er að opið og trúverðugt samtal eigi sér stað á milli ólíkra trúarbragða, þar sem virðing og skilningur er í fyrirrúmi. En það felur ekki í sér, að útrýma kristni úr menningu okkar, sem reynst hefur þjóðinni vel, mótað mannskilning okkar um aldir og sameinað þjóðina um einn sið og ein lög. Það heitir kristin siðmenning og er hornsteinn friðar í landinu. Viljum við breyta því? Höfundur er fyrrum sóknarprestur í Heydölum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnlaugur Stefánsson Trúmál Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar