Um fjöldamorð og Íslamófóbíu Sverrir Agnarsson skrifar 30. ágúst 2024 13:01 Afskiptaleysi vestrænna ríkja og fulltrúa þeirra og handbenda ásamt viðvarandi áhugaleysi á kröftugum aðgerðum til að fordæma og hindra óhugguleg fjöldadráp á börnum og konum í Palestínu má rekja til beint til Íslamófóbíunnar. Hún hefur tröllriðið vesturheimskum samfélagsmiðlum og rándýrum hatursíðum í áraraðir og svipt múslíma mennskunni og kerfisbundið lýst þeim sem skepnum án mannúðar og samkendar og hatursorðræðan er samin af dýrustu ímyndarsérfræðingum bandarískra auglýsingaiðnaðarins. Umskurður kvenna er t.d. ekki stundaður á Gaza né annars staðar í Palestínu en samt hef ég séð það fullyrt og nefnt sem réttlætingu þjóðarmorðsins og fleiri falsanir og ýkjur tilteknar. Allir muna lýsingarnar sem þuldar voru víða og rötuðu í ræðustól Alþingis m.a. í flutningi Birgis Þórarinssonar og Ingu Snæland sem sögðu 40 smábörn afhöfðuð og fóstur skorin innan úr konum meðal aðgerða í innrás Hams á Ísrael og spurt "hver gerir svona nema menn illir í gegn." Undir það er hægt að taka. En svo kom í ljós að einungis eitt smábarn var á lista Ísraelsstjórnar yfir fórnarlömb árásarinnar en blessað barnið hafði orðið fyrir byssukúlu sem sögð er palestínsk og það getur vel verið en engin 40 afhöfðuð smábörn hafa fundist ekki einu sinni eitt og ekkert barnshöfuð flutt til Gaza og engar konur kviðristar. Þannig atburður hefur átt sér stað í Palestínu en það var árið 1948 í þorpinu Deir Yassin vestur af Jerúsalem og hann er samkvæmt heimildum Robert Fisk vel skjalfestur bæði í skjölum Rauða Krossins og frásögum blaðamanna sem komu að og skrásettu það sem þeir sáu. Í Deir Yassin voru allir þorpsbúar sprengdir eða skotnir í tætlur, karlmennirnir eftir að hafa verið fluttir og sýndir á vögnum sem voru keyrðir um Jerusalem, naktir og niðurlægðir og svo til baka og teknir af lífi. OG MARGAR KONUR VORU KVIÐRISTAR (DISEMOWELED) ÓFRÍSKAR. Verknaðurinn var til þess gerður að hvetja Palestínumenn til flótta og ætlunarverkið tókst. Þessum aðförum var lýst í plaggi ”Plan Dalet” sem er ráðagerð tekin saman af forystumönnum Zionista að með hryðjuverkum hrekja Palestínumenn á brott. Þrátt fyrir að Ísraelar þræti fyrir tilvist þessarar ráðagerðar sem var nefnd til sögunnar fyrir atburðina - fylgdu þeir samt fyrsögn Plan Dalet eins og ísraelski sagnfræðingurinn Ilan Pappe lýsir því út í ystu æsar. Hryðjuverkin á Gaza núna eru sennilegast framin eftir sambærilegri leynilegri ráðagerð og árás Hamas notuð sem rásskot. Fréttastofa Rúv byrjar oftast umfjöllun um þjóðarmorðið í Palestínu með fyrivaranum „eftir að Hamas réðist á Ísrael og myrti 1200 manns“ þó opinbera talan hafi lækkað og fleiri en Hamas voru í innrásarliðinu og í ljós komið að ísraelskar þyrlur voru fljótar á vettvang og skutu án skilgreininga á bíla og byggingar og skriðdrekar birtust stuttu síðar og hleyptu af fallbyssum inn í hús sem Hamas hafði tekið og héldu gíslum. Talan 1200 er röng og engin veit með vissu hversu marga Ísraelar sjálfir drápu þó Hamas hafi að öllum líkindum verið afkastameiri þennan dag af þeim tæpu 28.000 dögum frá stofnun Israelsríkis og kúgunin varð viðvarandi. Við Íslendingar vitum af reynslu að fólk í sjávarplássum sem reglulega missa marga af sínum bestu sonum í hafið er trúaðara en önnur og ættum að skilja trúhita Gazabúa. Hann er ekki að hverfa og ekki sé ég nokkurn Palestínumann hallmæla Hamas sem ætti að vera nokkuð rakið og hættulaust núorðið þar sem Íraelar segjast hafa afgreitt þau og séu að sprengja restarnarnar þessa daganna. Við skulum vona að Gaza búar haldi sinni trú því þrátt fyrir útúrsnúninga og rangfærslur fóbíunnar er Íslam friðsamt og hvenær og hvernig á að heyja stríð er útlistað í kafla 2. kafla Kóranins í versum 190-193 sem í þýðingu Helga Hálfdánarsonar segja:190. Berjizt fyrir málstað Allah gegn þeim sem á yður herja. En hefjið eigi fjandskap, því ekki eru árásarmenn Allah að skapi. 191. Fellið þá hvar sem þeir finnast. Og rekið þá út þaðan sem þeir hafa yður út rekið, því áþján er verri en mannvíg. En berjizt ekki við þá innan vébanda hins Heilaga Bænahúss, nema þeir ráðist á yður. En geri þeir það, þá berið þá vopnum. Þannig skal launa trúníðingum. 192. Láti þeir af árásum, er víst, að Allah fyrirgefur af mildi. 193. Berjizt við þá þar til allri árás er hrundið og trúin á Allah[1] ríkir ein. En ef þeir bæta ráð sitt, þá berjizt ekki við aðra en illvirkja. Þessar leiðbeiningar um hvenær stríð séu leyfð eru hluti Íslamófóbíunnar og oft birt á haturssíðunum en þá hagrætt lævíslega og seinni hluta 190 sleppt og 191 brenglað yfir í hatursbokðskap. Kóraninn býður múslímum að boða öðrum Íslam friðsamlega án yfirgangs og leggur áherslu á samræðu og skilning. Múslímar eiga að kynna Íslam og alls ekki neyða sinni trú á aðra. Vopnlausum árásum á Íslam eins og formælingum og Kóranbrennum sé best svarað með þolgæði og ávarpinu fríður sé með ykkur. Enginn skal neyddur til trúar!Hér eru nokkur dæmi í þýðingu Helga Hálfdánarsonar: 16. kafli – Býflugan Vers 125: Kallaðu menn á veg Drottins þíns með hyggindum og vinsamlegri hvatningu. Ræddu við þá hæversklega. Drottinn þinn þekkir bezt þá sem villzt hafa af vegi Hans og þá sem leiðsögn þiggja. Vers 126: Ef þér refsið, þá refsið þeim svo sem hæfir broti þeirra gegn yður. En bezt mun yður gefast að mæta ranglætinu með þolgæði, 25. kafli – Skil hins rétta og ranga Vers 63: Sannir þjónar hins Náðuga eru þeir sem í auðmýkt stíga fæti á fold og segja: „Friður sé með þér!“ við hina fávísu sem ávarpa þá. 5. kafli – Matborðið Vers 99: Sú ein er skylda Sendiboðans að flytja boðskap. Allah veit allt sem þér kunngjörið og allt sem þér dyljið. 2. kafli Kýrinn Vers 256: Í trúnni er engin nauðung. Hin rétta leið er auðgreind frá villu 18. kafli Hellirinn Vers 29: Seg þú: „Þetta er sannleikurinn frá Drottni yðar. Látið hvern sem vill trúa honum, og hvern sem vill neita því.” 29. kafli Kóngulóin Vers 46: Vertu hógvær þegar þú ræðir við lýð Ritningarinnar, nema þá sem ódæði fremja. Seg þú: „Vér trúum því sem oss er opinberað og opinberað var yður. Vor guð og yðar guð er einn og hinn sami. Honum göngum vér á hönd.” 28. kafli Frásögnin Vers 56: Ekki getur þú leiðbeint hverjum sem þér þóknast; það er Allah sem leið- beinir þeim sem þess óska. Hann þekkir bezt þá sem leiðsögn vilja hljóta. 109. kafli Hinir trúlausu Verse 6: Þér hafið yðar eigin trú, og ég hef mína. Höfundur er sérfræðingur í fjölmiðlarannsóknum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Sverrir Agnarsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun