18 holu vatna- og skógavöllur með töfrandi fjallasýn Golfvöllur vikunnar 8. júlí 2024 09:36 Keppendur í vinsæla og árlega Hjóna- og paramóti GB njóta sín fyrir utan Hótel Hamar og fylgjast með keppendum á 18. flöt sem liggur við hótelið. Golfklúbbur Borgarness Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra af þeim golfvöllum sem spennandi væri að prófa í sumarfríinu en yfir sextíu golfvelli er að finna víða um land. Golfvöllur vikunnar er Hamarsvöllur.
Töfrandi fjallasýn og gróið umhverfi er eitt af því sem heillar við Hamarsvöll. Golfklúbbur Borgarness Íslenskir golfvellir eiga það sameiginlegt að náttúrufegurðin er allt um kring. Hamarsvöllur í Borgarnesi er þar engin undantekning með töfrandi fjallasýn og gróið umhverfi. Hamarsvöllur er 18 holu skóga- og vatnavöllur sem gerir hann fjölbreyttan og skemmtilegan til að spila. Hver hola hefur sinn karakter og mikill metnaður er lagður í umhirðu vallarins svo brautir og flatir eru í frábæru standi. Golfklúbbur Borgarness Völlurinn er mjög góður fyrir kylfinga á öllum getustigum, frá byrjendum til atvinnukylfinga. Þar er góð æfingaaðstaða og meðal annars að finna púttsvæði bæði við gamla bæinn og Hótel Hamar og svo æfingasvæði fyrir neðan gamla bæinn þar sem hægt er að æfa stuttu og löngu höggin. Bæði heimamenn og gestir eru duglegir að sækja völlinn. Hamrasvöllur nýtur þess að vera í þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík en stór meirihluti gesta kemur frá höfuðborgarsvæðinu eða nágrannaklúbbum. Fallegar tjarnir og trjálundir gera völlinn virkilega fjölbreyttan að spila. Golfklúbbur Borgarness Hótel Hamar er staðsett á vallarsvæðinu og er Golfklúbbur Borgarness í nánu samstarfi við hótelið. Þar geta gestir vallarins slakað á eftir golfhring og gert vel við sig í mat og drykk. Aðstaðan er glæsileg og meðal annars hægt að sitja út á verönd og njóta útsýnisins.
Golfvellir Golf Mest lesið Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira