Er landið stjórnlaust og býr þjóðin við valdníðslu og rányrkju? Vilhelm Jónsson skrifar 27. maí 2024 10:31 Íslendingum vantar ekki hlutdrægan forseta á Bessastaði sem sameiningartákn til að Ríkisstjórn Íslands geti haldið áfram að fara frjálslega með ríkiseigur með Katrínu Jakobsdóttir sem forseta og stimpilpúða. Þjóðin á ekki að velja sér forseta sem hefur ekki vilja til að vera í tengslum við almannahag og rýna í áratuga ágreiningsefni. Íslendingar eiga ekki að bera lengur harm sinn og þrælslund í hljóði í von um betri tíma, því lengi getur vont versnað. Katrín er augljóslega að flýja sökkvandi skip í leit að öruggara viðurværi og hefur vondan málstað að verja. Flokkurinn í rúst, fylgi ríkisstjórnarinnar vart yfir 3o%, mikil verðbólga, fáránlegt vaxtastig, óheyrilega hækkanir á byggingakostnaði sem leiðir út í verðlagningu fasteigna sem gerir nýjum kynslóum nánast óbærilegt að eignast eigið heimili. Þensla ríkisapparatsins og þjóðarhalli hefur margfaldast undir forystu fyrrverandi forsætisráðherra. Katrín Jakobsdóttir vill sem minnst rifja upp efndir um bætt kjör til aldraðra og öryrkja. Elíta Sjálfstæðisflokksins er augljóslega að fylkja sér um framboð Katrínar, árásir Morgunblaðsins og fleiri fjölmiðla á Höllu Hrund hefur ekki farið fram hjá fólki. Tal um skrímsladeild sem er komin á fullt er ekkert út í bláinn heldur blákaldur sannleikur. Þingmenn ríkisstjórnarflokka vilja almennt ekkert hafa af þjóðinni að segja nema til að endurnýja umboð sitt á fjögurra ára fresti til að ástunda sérhagsmunapot, ásamt ráðherraræði og hundsa þingræði. Svokallaður fjórflokkur hefur stýrt landinu til skiptis áratugum saman, mulið undir sig og sína á kostnað þjóðarinnar og látið almannahag sig litlu skipta. Varðhundar ríkisstjórnarflokkanna og útbrunnir stjórnmálamenn, ásamt útvalinni listaelítu á ríkisspenanum, verja með kjafti og klóm að engu megi breyta. Óeining og sundrung hefur verið allsráðandi í valdatíð Katrínar Jakobsdóttir, sem hefur aukið enn frekari á verkleysi stjórnvalda ásamt misskiptingu og upplausn. Bankar eru seldir vinum og vandamönnum, ásamt öðrum ríkiseigum og skautað hjá öllu regluverki og eðlilegri stjórnsýslu. Spilling er aðalsmerki ríkisstjórnarflokkanna sem forherðast með hverju árinu og verða stórtækari í að fara frjálslega með þjóðareigur á kostnað almennings. Ísland hefur þann vafasama stimpil að teljast eitt af spilltustu ríkjum í heiminum. Þúsundir milljarða voru afskrifaðir í bankahruninu, sem átti sér stað fyrir tilverknað óvandaðra manna sem fengu að vaða uppi með ránshendi í boði stjórnmálamanna og er enn að hámarka rányrkju sína og hagsmuni. Það er ekki boðlegt að stjórnvöld þurfi að grípa til hundrað ára leyndarhyggju sem lærimeistari Katrínar nýti sér til að hylma yfir ljótum, ef ekki glæpsamlegum athæfum í stjórnarsetu sinni 2009-13. Skuldauppgjör sem átti sér stað í því stjórnarsamstarfi verður Vinstri Grænum og Samfylkingu ævinlega til skammar. Það er löngu tímabært að þjóðin fái þann arð af þjóðarauðlindum sem henni ber og einnig verði látið af fiskveiðaheimildum í núverandi mynd. Sú rányrkja sem á sér stað við strendur Íslands í boði stjórnvalda til útvalinnar útgerðafélaga, er ekkert annað en viðurstyggilegur þjóðarglæpur sem ber að uppræta. Stjórnvöld hafa engan vilja til að breyta stjórnarskrá og koma böndum á þjóðarauðlindir til að taka allan vafa að óvandaðir stjórnmálamenn láti af iðju sinni og hætti að reyna braska með ríkiseigur og þjóðlendur þvert á þjóðarvilja. Það er fullreynt að Alþingi geti komið sér saman um breytta stjórnarskrá og löngu tímabært að líta til fyrri vinnu. Til slíkra verka þarf vandaðri menn en sérhagsmunapólitíkusa sem skilja ekki hvað lýðræði er. Hvaða glæpamaður mundi ekki vilja skrifa og aðlaga regluverk og refsiramma að eigin siðblindu. Verðbólga síðustu 45 ár ætti að vera búin að kenna þjóðinni að lækkun á verðbólguhorfum er tálsýn til lengri tíma litið. Undirliggjandi spenna á fasteignarmarkaðinum ásamt lélegri efnahagsstjórn mun sem fyrr sprengja verðbólguna aftur og aftur upp. Óstöðugur gjaldmiðillinn verður að víkja eða tengja hann við aðra mynt og ferðmannastraumur til landsins þarf að minnka verulega, eigi eðlilegur húsnæðismarkaður að þrífast. Að ekki sé talað um heilbrigðisþjónustu, lífskjör og að þjóðinn geti lifað sómasamlegu lífi. Starfshættir á Alþingi Íslands eru til skammar, þingmönnum er skammtað fimm vikna jólafrí síðan tekur þriggja vikna páskafrí við og þriggja mánaða sumarfrí. Þess á milli afrekar þingið vart annað en að ástunda að taka á móti leikskólabörnum, málþófi, slatta af nefndardögum og kjördæmavikum þar sem þingmenn telja sig þess bæra að keyra um allar trissur á kostnað lands og þjóðar. Undir forystu Katrínar hafa alþingismenn skammtað sér feitar verðtryggðar launahækkanir og höfða síðan til þjóðarinnar að sýna ábyrgðarkennd í sínum kröfum. Eðlileg uppbygging á innviðum er í molum fyrir tilverknað ónýtra fjármálastjórnar og gjaldmiðils. Ríkissjóður hefur verið rekinn árum saman með miklum fjárlagahalla ásamt, sveitarfélögum sem eru tæplega að ráða við fjárskuldbindingar sínar. Hver nefndin af annarri er skipuð til að rýna í vandann við að jarðsetja heimatilbúinn verðbólgudraug og óstjórn, án minnsta árangurs. Fyrstu fasteignarkaupendur sem eru að reyna kaupa sína fyrstu íbúð og eiga ekki efnaða foreldra að, eiga litla sem enga möguleika að takast á við vitræn íbúðarkaup. Kaupendur sem hafa takmarkað fjármálalæsi og taka að sér mikla lánsbyrði eru að spila rússneska rúllettu með framtíðarhorfur sínar. Stjórnmálamenn víla ekki fyrir sér að gefa í skyn að betri tímar sé handan við hornið, þó ekkert liggi þar að baki en orðahjal og hræsni. Kaupendur eru að undirgangast falskt lánshæfismat sem stenst enga skoðun og dæmt til að vera ómarktækt, sé litið til verðbólgu, sem tekjulægra fólk getur ekki staðið undir vegna forsendubrests. Fyrirkomulagið er galið, ekki síst til þeirra sem hafa takmarkað fjármálalæsi og treysta í einfeldni sinni á ónýt greiðslumat. Því meiri sem verðbólgan er, berja bankastjórar sér á brjóst að afkomutölur hafi aldrei verið betri og tug milljarðar hagnaður hafi átt sér stað eftir afskriftir. Þjóðin býr yfir miklum þjóðarauðlindum og þarf ekki að takast á við herskyldu, engu að síður eru flestir innviðir að grotna niður og þjóðin getur ekki búið við sómasamlega lífskjör. Þjóðin er að takast á við sjálfskaparvíti og það er löngu tímabært að farið sé að horfast í augu við hver hinn raunverulegi vandi er. Katrín Jakobsdóttir ætti að íhuga að henni tókst aldrei að vera annað og meira en tálsýn sem lofaði hverju sem var og stóð ekki við neitt. Fyrrverandi forsætisráðherra ber verulega ábyrgð á framangreindum erfiðleikum sem steðjar að þjóðinni og fjárlagahalla sem verið er að vísa á komandi kynslóðir. Kjósendur sem vilja ekki Katrínu sem forseta, þurfa að íhuga með ísköldu hugafari að Katrín hagnist ekki á að atkvæðin dreifist á frambjóðendur sem lítið fylgi er að baki í skoðanakönnunum. Sé litið til valdatíðar Katrínar Jakobsdóttir ætti þjóðinni að vera ljóst að fyrrverandi forsætisráðherra er óhæf að takast á við að vera sameiningartákn á Bessastöðum og enn síður að gera greinarmun hvenær rétt sé að virkja 26. gr. stjórnarskrárinnar. Vonandi finnur Katrín sér annað starf sem hefur ekkert með farsæld þjóðarinnar að gera. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Skoðun: Forsetakosningar 2024 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar