Kryddum tilveruna í skrautbúning Ásdís Rán Gunnarsdóttir skrifar 27. maí 2024 10:31 Mér er minnisstæð mynd af Guðrúnu Katrínu þar sem hún situr í þjóðbúningnum eftir að Ólafur Ragnar var kosinn forseti, hún var einstök kona og við deilum því saman að vera ljón fæddar þann 12. og 14. ágúst. Þjóðbúningurinn hafði sterk áhrif á mig unga og nú í tilefni framboðsins langaði mig að prófa að klæðast honum. Það reyndist mér hins vegar erfitt að finna skautbúning og allt sem honum fylgir en mér tókst að lokum að finna hann hjá Þjóðdansafélaginu í Mjódd. Mér til mikillar gleði var ljóst að íturvaxin kona hafði átt hann því að hann smellpassaði á mig og hefði ekki mátt muna sentimetri á sniði svo að upp kæmi vandamál. Konur Þjóðdansafélagsins sögðu mér að ég væri nú bara að leita að því allra fínasta, þeir væru fáir til hér á landi skautbúningarnir og flestir metnir á margar milljónir! Þegar ég fékk hann svo lánaðan hjá þessum góðu konum þá fylgdi honum aðstoðarkona sem fylgdist með búningnum hverja einustu mínútu. Það tók góðan klukkutíma að klæða mig í hann, setja á allt skraut, höfuðfat og annað sem fylgir og svo þurfti að klæða mig úr honum á viðeigandi hátt að tökum loknum. Tilgangur minn með því að klæðast þessum einstaklega fallega þjóðbúningi kvenna var að tjá mig á táknrænan hátt um stefnumál mín í kynningarmyndbandi um framboð mitt. Í myndbandinu legg ég áherslu á að sýna glæsilegan menningararf og einstaka náttúru landsins um leið og ég geri grein fyrir því hvernig ég lít á embætti forseta Íslands. Afraksturinn var fallegt myndband blandað af okkar fallegu náttúru og menningu í bland við smá forseta brag. Í krefjandi en bæði skemmtilegri og lærdómsríkri framboðsbaráttu minni þá hef ég að mestu leyti staðið ein að henni ásamt Hrefnu systur minni sem staðið hefur þétt við hlið mér allan tímann. Fjölskyldan hefur stutt mig og hvatt áfram með trú á að vegferð mín væri heillavænleg hvernig svo sem niðurstöður kosninga yrðu. Segja má að við færum fram með eldmóði einum saman og að mestu án fjármagns, án auglýsinga og án markaðs-og kosninga teymis. Við nutum þó þess að ýmsir aðilar lögðu okkur lið varðandi þau verkefni sem við tókum okkur fyrir hendur og ég er þeim innilega þakklát. Nú er að koma að því að fagna uppskeru af kosningabaráttu síðustu mánaða og við systur erum mjög stoltar af því að hafa komið með ferskan og jákvæðan blæ inn í framboðsferlið fyrir forsetakosningarnar að þessu sinni. Hversu mörg atkvæði koma í hús á laugardaginn breytir engu þar um. Við höfum skapað fordæmi sem felur í sér hvatningu til fólks um að losa sig undan fjötrum staðnaðra viðhorfa og láta reyna á hið ómögulega sem við trúum að oftar en ekki sé upphaf á farsælli vegferð. Barátta okkar er og verður sigur í kosningunum því okkur tókst það ógerlega að koma úr óvæntri átt askvaðandi inn á svið þjóðmála og mála bæinn rauðan. Tefla fram kynþokka og frösum sem lifa, krydda tilveruna með glaðværð og léttleika og síðast en ekki síst vekja fólk til umhugsunar og þar með að hafa okkar áhrif á samtímann. Þetta er það sem eftir stendur um ókomin ár. Saman erum við hjarta og sál þessarar þjóðar og með samstöðu, jákvæðni og opnum hug vöxum við í átt að breyttum og betri tímum.Ég segi það enn og aftur, við þurfum ekki fleiri stjórnmálamenn eða fræðimenn í stöðu forseta Íslands, við þurfum leiðtoga og fyrirmynd sem hefur áhrif á framtíðina og komandi kynslóðir, sem þekkir baráttu hversdagsins, hvetur til góðra verka og eflir samstöðu og jákvæðan baráttuvilja meðal þjóðarinnar. Nú er baráttunni að ljúka og þann 1. júní fögnum við því að standa uppi sem okkar eigin sigurvegarar og áhrifavaldar fyrir komandi kynslóðir og vonandi ryðjum við brautina fyrir fleiri eldhugum sem vilja breyta heiminum til hins betra. Ég þakka kærlega fyrir þann mikla stuðning sem ég hef verið svo lánsöm að fá á framboðsferli mínum og er þakklát fyrir að fá tækifæri til að kynnast þjóðinni minni betur og leyfa þjóðinni að kynnast mér. Að lokum vil ég færa öllum þeim sem stigu inn og buðust til að aðstoða mig með einum eða öðrum hætti mínar innilegustu þakkir.Þið sýnduð áræði og hjálpsemi sem hvorutveggja er til fyrirmyndar. Kosningavakan okkar og opið hús verður á DASS Vegamótastíg frá kl 20:00 á laugardag og við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga með ykkur skemmtilega stund. Höfundur er forsetaframbjóðandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2024 Skoðun: Forsetakosningar 2024 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar