Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. apríl 2024 13:07 Atvikið átti sér stað fyrir utan skemmtistað í miðborg Helsinki aðfaranótt föstudags. Getty Timo Vornanen, þingmaður Sannra Finna, var handtekinn og er grunaður um að hafa hleypt af skoti í götuslagsmálum sem brutust út í miðborg Helsinki aðfaranótt föstudags.
YLE greinir frá því að slagsmál hafi brostist út fyrir utan skemmtistaðinn Ihku um fjögur um nótt. Vornanen er sagður hafa mundað skammbyssu og hleypt skoti af í jörðina. Áður en hann hleypti af skotinu er hann einnig sagður hafa miðað henni á fólk. Lögreglan í Helsinki segist búa yfir myndefni af atvikinu úr öryggismyndavél. Timo Vornanen situr sitt fyrsta kjörtímabil á þingi þeirra Finna en starfaði áður sem lögregluþjónn í meira en tvo áratugi. YLE hefur eftir Samppa Holopainen lögreglustjóra að hann geti ekki staðfest að hann hafi skilað þjónustuvopni sínu þegar hann hætti hjá lögreglunni. Lögreglan fer ekki fram á gæsluvarðhald yfir Vornanen. Frumstigi rannsóknar lýkur í dag að sögn lögreglunnar og verður Vornanen sleppt úr haldi. Riikka Purra, formaður Sannra Finna, segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að um alvarlegt atvik sé að ræða og að þingflokkurinn muni grípa til viðeigandi ráðstafana.
Finnland Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira