Ekki merki um að kvika sé á ferðinni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. apríl 2024 18:38 Frá Grindavík. Vísir/Arnar Skjálftavirkni sem mælst hefur í dag norðvestur af Grindavík er sambærileg virkni sem mældist á svæðinu um miðjan mars. Skjálftavirknin er því ekki merki um einhverjar breytingar í virkni í eldgosinu á Reykjanesi, né að kvika sé á ferðinni á svæðinu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Eins og fram hefur komið hafa allnokkrir smáskjálftar, minni en einn að stærð mælst við Grindavík síðustu klukkustundirnar. Virknin er að megninu til staðsett innan sigdalsins sem myndaðist þann 10. nóvember síðastliðinn. Segir Veðurstofan að hún sé líklega vegna áhrifa frá landrisinu í Svartsengi sem valdi spennubreytingum á svæðinu. Þá segir í tilkynningu Veðurstofunnar að aðeins hafi dregið úr skjálftavirkninni nú undir kvöld. Ekki sé talið líklegt að stórir skjálftar fylgi þessari virkni sem mælist nú. Ef kvika færi að leita annað en þá leið sem hún hefur farið yfir í Sundhnúksgígaröðinni, til dæmis í vestur í átt að Eldvörpum eða suður af Þorbirni, væri undanfari mögulegs eldgoss á því svæði mjög ákafar skjálftahrinur og aflögun sem kæmi skýrt fram á mælitækjum og gervitunglamyndum, að því er segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Engin merki séu um slíkt á þessum tímapunkti.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira