Verslun Húsasmiðjunnar á Akureyri fær alþjóðleg verðlaun Húsasmiðjan 15. mars 2024 09:36 „DBA verðlaunin eru staðfesting á því að við erum á hárréttri leið,“ segir Magnús Magnússon markaðsstjóri Húsasmiðjunnar. Verslun Húsasmiðjunnar á Akureyri hefur fengið alþjóðlegu hönnunarverðlaunin „DBA Design Effectiveness Awards“ fyrir hönnun, útlit, sjónaræna upplifun og notagildi. Samskonar verslun hefur verið opnuð á Selfossi
Verslunin var hönnuð af breska hönnunarfyrirtækinu M WorldWide og eru verðlaunin mikil viðurkenning fyrir samstarf Húsasmiðjunnar og M WorldWide. „Heilt yfir er ekki mikill munur á Íslandi og öðrum löndum þegar kemur að smásölu. Ísland er vel þróaður markaður og hér er að finna sömu áskoranir og annars staðar. Markmiðið með nýrri hönnun verslana Húsasmiðjunnar og Blómavals er fyrst og fremst að auka upplifun, nútímavæða útlit og bæta þjónustu við viðskiptavini. DBA verðlaunin eru staðfesting á því að við erum á hárréttri leið með verslanir okkar á Akureyri, Selfossi og að ógleymdri nýrri og endurbættri Blómavalsverslun í Skútuvogi í Reykjavík. Móttökur viðskiptavina hafa svo úrslitaáhrif og satt best að segja hafa viðtökurnar farið langt fram úr væntingum,” segir Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar. Verslun Húsasmiðjunnar á Akureyri. Samskonar verslun hefur verið opnuð á Selfossi. „Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinum okkar líði vel í verslunum okkar og við hönnun verslunarinnar á Akureyri var einmitt horft til þess að uppsetning, útlit, sjónræn áhrif og notagildi væri í fyrirrúmi,” segir Kristín Dögg Jónsdóttir, rekstrarstjóri verslunar Húsasmiðjunnar á Akureyri. „Við höfum orðið vör við mikla ánægju viðskiptavina okkar með verslunina og út frá þessari stórglæsilegu hönnun getum við ekki einungis veitt betri þjónustu, heldur jafnframt betra úrval.” Starfsfólk verslunar Húsasmiðjunnar á Akureyri fagnaði móttöku verðlaunanna í gær. DBA Design Effectiveness Awards má líkja við Óskarsverðlaun kvikmyndaheimsins og þykir það mikil upphefð að hljóta þau. Dæmt er út frá fjölda mismunandi þátta og er ekki einungis horft út frá teikningum og myndum, heldur einnig raunverulegu notagildi og útliti. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá því árið 1989. Starfsfólk verslunar Húsasmiðjunnar á Akureyri fagnaði móttöku verðlaunanna í gær og var af því tilefni sett upp kynning á þeim við inngang hennar. Ný verslun Húsasmiðjunnar á Selfossi byggir einmitt á sömu hönnun og því óhætt að segja að það sé verðlaunaverslun að auki.
Verslun Byggingariðnaður Hús og heimili Akureyri Mest lesið Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira