Ríkisútvarpið ætlar að taka þátt í Eurovision Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. mars 2024 15:13 Hera Björk fór af sigur með hólmi í Söngvakeppninni í ár. Vísir/Hulda Margrét Ríkisútvarpið ætlar að taka þátt í Eurovision og senda sigurlag Söngvakeppninnar í ár, Scared of Heights, í flutningi Heru Bjarkar til Malmö í Svíþjóð.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að það hafi ekki komið til greina að senda annað lag út en sigurlagið. Hera hafi verið óumdeildur sigurvegari og fari til Malmö. Hera Björk sé reiðubúin til að keppa og ætli að breiða út boðskap friðar og kærleika. Í samtali við fréttastofu segir Valgeir Magnússon umboðsmaður Heru að söngkonan muni ekki veita nein viðtöl í dag vegna ákvörðunarinnar. Allt sem hún vilji koma á framfæri komi fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu að lag Heru hafi unnið einvígi Söngvakeppninnar með nokkrum yfirburðum. Þegar atkvæðum úr fyrri umferð kosningarinnar og atkvæðum dómnefndar hafi verið bætt við hafi munað 3.500 atkvæðum á fyrsta og öðru sæti. Eins og fram hafi komið hafi verið ágallar á kosningaappinu RÚV Stjörnur, sem notað var til að velja sigurvegara ásamt hefðbundinni símakosningu. Fyrir mistök hafi tiltekinn möguleiki í appinu ekki virkað sem skyldi og segir Ríkisútvarpið að það hafi komið niður á báðum lögum í einvíginu. Samkvæmt gögnum frá framleiðendum appsins hafi aðeins verið greidd 748 atkvæði með þessum hætti, bæði í fyrri kosningunni, sem hafi gengið snurðulaust fyrir sig og í þeirri seinni þegar mistök hafi orðið. Atkvæði sem mögulega hafi misfarist vegna þessarar villu hafi verið enn færri en talið var í fyrstu og því sé alveg ljóst að þetta hafi engin áhrif haft á lokaniðurstöðuna. „Hera Björk er óumdeildur siguvegari Söngvakeppninnar 2024,“ segir í tilkynningunni. Málið skoðað frá öllum hliðum Þá segir í tilkynningunni frá Ríkisútvarpinu að miklar umræður hafi skapast um þátttöku Íslands í Eurovision undanfarna mánuði vegna ástandsins á Gasa. Ákveðið hafi verið í samráði við keppendur í Söngvakeppninni að slíta tengsl keppninnar við Eurovision og ákveða hvort Ísland yrði með í henni eftir að keppni lyki hér heima. Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, hafi sagt að horft yrði til margra þátta þegar sú ákvörðun yrði tekin. Eftir að málið hafi verið skoðað frá öllum hliðum sé niðurstaðan sú að RÚV taki þátt í Eurovision. „Margt kom inn í þetta mat. Sigurlagið er frábært og flutt af einni okkar allra bestu söngkonu sem býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði,“ segir Stefán í tilkynningunni. „Við höfum á undanförnum vikum og mánuðum fylgst náið með stöðunni hjá systurstöðvum okkar á Norðurlöndunum, sem allar ætla að taka þátt í keppninni og öðrum stöðvum innan EBU þar sem afstaðan er sú sama. Framkvæmd keppninnar er í höndum Svía, sem eru náinn samstarfsaðili okkar á mörgum sviðum og vinaþjóð. Allt framangreint kom inn í okkar mat og niðurstaðan liggur nú fyrir. Hera Björk verður glæsilegur fulltrúi okkar í Malmö í vor.“ Hefðu ekki sent Bashar í stað Heru Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins segir í tilkynningunni að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld. Haft er eftir honum að stjórnendur Ríkisútvarpsins hafi auðvitað orðið vör við ógluna í samfélaginu vegna keppninnar hér heima og mögulegrar þátttöku úti. „Hera Björk vann einvígið með yfirburðarkosningu almennings og við lítum á það sem eindreginn stuðning við að hún fari í Eurovision fyrir okkar hönd. Við hvetjum öll til að fylkja sér á bak við Heru og hennar samstarfsfólk, hún verður glæsilegur fulltrúi okkar,“ segir Skarphéðinn. Þá segir hann að ekki hafi staðið til að senda lagið sem var í öðru sæti í Söngvakeppninni, lag Bashar Murad, út í Eurovision ef Hera hefði afþakkað boð um þátttöku. „Það kom aldrei til greina í okkar huga. Útvarpsstjóri tjáði keppendum í Söngvakeppninni í lok desember að ef sigurlagið færi ekki út myndum við hætta við þátttöku og sú ákvörðun stendur. Auðvitað er leiðinlegt að einn höfunda lagsins, Ásdís María Viðarsdóttir, hafi ákveðið að fara ekki út en við skiljum afstöðu hennar. Hún tjáði okkur þó að hún myndi ekki standa í vegi fyrir að Hera héldi sínu striki og flytti sigurlagið í Malmö, sem er göfugt og fallegt af henni,“ Hera segist hafa verið hugsi „Ég stend við það sem ég sagði að ef lagið sigraði væri ég reiðubúin að taka þátt í keppninni úti,“ er haft eftir Heru Björk í tilkynningu Ríkisútvarpsins. „Ég viðurkenni að í allri umræðunni eftir Söngvakeppnina varð ég hugsi. Umræðan hryggir mig. Bæði hvernig talað var um mig og mér gerðar upp alls kyns annarlegar skoðanir og meiningar og ekki síðust hvernig talað var um Bashar. Þessi umræða var okkur ekki til sóma og eftir því sem ég hugsaði þetta meira hertist ég í því að standa við orð mín og halda utan eisn og þjóðin kaus mig til að gera. Ég og minn góði hópur munum taka þátt og gera allt sem við getum til að breiða út boðskap friðar og kærleika á sviðinu og sameinast í gegnum tónlistina.“ segir Hera. Þá kemur fram að undirbúningur fyrir íslenska atriðið hefjist nú af krafti. Eurovision hópurinn haldi til Malmö í lok apríl. Hera Björk og félagar stígi á stóra sviðið þann 7. maí. Fréttin er í vinnslu.
Eurovision Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tónlist Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Fleiri fréttir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Sjá meira