Spyr hvort aka þurfi á barn svo eitthvað verði gert Jón Ísak Ragnarsson skrifar 12. mars 2024 07:01 Móavegur bakdyrameginn. Stutt og greiðfært er til þungrar umferðaræðar, Borgarvegs. Vísir/Vilhelm Nanna Hólm býr í Grafarvoginum á Móavegi 4 á jarðhæð. Þung umferð er við blokkina og öryggisráðstafanir fyrir gangandi vegfarendur eru litlar sem engar. Umferðin er ekki girt af og bílar keyra þar oft vel yfir löglegum hámarkshraða segir Nanna. Sömuleiðis þjóti rafskútur um svæðið á ógnarhraða. Nanna spyr hvort bíða þurfi eftir því að barn verði fyrir bíl svo eitthvað verði gert.
Blokk á miðri umferðareyju Á Móavegi 2-12 eru 155 íbúðir í sex blokkum á vegum Bjargs íbúðafélags, húsnæðissjálfseignarstofnunar sem rekin er án hagnaðarsjónarmiða. Blokkirnar eru nýlega byggðar, síðustu íbúðirnar voru fullkláraðar og afhentar 17. janúar 2020. Blokkirnar standa á miðri umferðareyju við Spöngina. Umferðargötur eru alltumlykjandi en aðalumferðaræð Grafarvogs, Borgarvegur, er sunnan megin við blokkirnar. Þar er 50 km hámarkshraði. Blokkirnar við standa milli Móavegs og Borgarvegs.VÍSIR Blokkirnar standa við hlið Spangarinnar, helsta verslunarkjarna hverfisins, og því fylgi mikil umferð. Þar sé Borgarholtsskóli einnig til húsa sem veldur mikilli umferð unglinga um svæðið. Þeir æða um svæðið á vespum og rafskútum á ógnarhraða segir Nanna. Engar öryggisráðstafanir Nanna Hólm býr sem fyrr segir á Móavegi 4 á jarðhæð með tvö ung börn. Hún segir öryggisráðstafanir vegna þungrar umferðar í kringum blokkina vera svo gott sem engar. Í blokkunum búi margt ungt fólk með börn og milli blokkanna sé meira að segja leiksvæði sem ekki er girt af. Hún vakti athygli á þessu í færslu á Facebook í gær. Blokkirnar standi við Borgarveg, mikla umferðaræð í Grafarvogi þar sem hámarkshraði er 50 km á klst. Mjög stutt sé út á götuna frá bakgarðinum. Annars staðar í kring sé 30 km hámarkshraði, en Nanna segir að þar sé jafnvel enn meiri hætta því enginn virði hámarkshraðann þar. Hún segir fráleitt að svæðið sé ekki girt mun betur af en raun ber vitni. Hún vilji að minnsta kosti girða Borgarveginn af, en neðstu hæðir blokkanna snúa beint að honum. Nú séu einungis lágvaxnir runnar sem standa í vegi fyrir trítlandi börnum. Lítið mál sé fyrir þau að komast framhjá þeim. Hún segir að girðing sé við blokk 12 sem er næst strætóstoppistöðinni, en hún nái ekki nógu langt. Hún ætti hiklaust að ná yfir allt svæðið. Móavegur 12.VÍSIR/VILHELM Hún nefnir einnig að göng séu á milli blokka númer 2, 6, og 10 og þar með séu margir vegir færir fyrir börn sem vilja hlaupa út á götu. Þung umferð sé í allar áttir og allir vegir færir fyrir forvitin börn. Einnig sé leiksvæði á svæðinu sem henni finnst að ætti að girða af. Of stutt leið sé frá rennibrautum og gleði yfir í bílaumferð. Leiksvæðið í portinu. Stutt er í bílaumferð í allar áttir.VÍSIR/VILHELM Treysti sér ekki á leiksvæðið þegar hún var ólétt Nanna skrifaði færsluna á Facebook í kjölfar þess að hún missti sjónar í skamma stund á eins og hálfs árs gamalli dóttur sinni. Hún hafi valsað burt og Nönnu hafi brugðið verulega í brún því að óafgirtar umferðargötur eru í allar áttir. Hún hafi svo fundið dóttur sína trítlandi við Borgarveginn í átt að strætó. Sem betur fer hafi verið gott skyggni um miðjan dag og akandi bílar hafi séð hana og hægt á sér. Hún segir að þetta hefði hæglega getað farið verr. Hér sést Nanna ásamt börnum sínum tveimur, þeim Kristbirni Einari 3,5 árs og Filippu Katrínu 1,5 árs í bakgarði íbúðarinnar. Mjög stutt er út á þunga umferðargötu. Margrét Einarsdóttir móðir Nönnu, stendur yfir þeim.Aðsend Þegar Nanna var ólétt af dóttur sinni treysti hún sér ekki til að fara með strákinn sinn, sem þá var rúmlega eins árs á leiksvæði blokkarinnar. Leiksvæðið er ekki girt af og hefði strákurinn tekið upp á því að vappa í átt að götunni hefði hún ekki endilega náð að stöðva hann. Reykjavík vildi ekki girðingu Nanna segist hafa haft samband við Bjarg fyrir meira en ári síðan og gert athugasemdir. Bjarg hafi bent á Reykjavíkurborg og sagt að það væri þeirra að girða svæðið, og borgin hafi ekki viljað það. Ekkert meira hafi heyrst um þetta. Girðingin nær því ennþá bara frá strætóstoppistöðinni að blokk númer 12, en hinar blokkirnar þurfi að sætta sig við lágreista runna.
Reykjavík Umferðaröryggi Mest lesið Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Innlent Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Innlent Misstu allt samband við Internetið Erlent Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Erlent Hópslagsmál og hundaárás Innlent Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Innlent Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Erlent Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Innlent Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Innlent Fleiri fréttir Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Sjá meira