Ljúf jólastemning á Bylgjan órafmögnuð Bylgjan 13. desember 2023 13:00 Lokaþáttur Bylgjan órafmögnuð verður sýndur á morgun en um er að ræða sérstakan jólaþátt. Þar munu flytjendur sem hafa tekið þátt flytja hver eitt jólalag ásamt því að taka létt jólaspjall við útvarpskonuna Völu Eiríks. Myndir/Hulda Margrét. Lokatónleikarnir í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð verða sýndir á morgun fimmtudag en um er að ræða sérstakan jólaþátt.
Þar munu þeir flytjendur sem hafa tekið þátt flytja hver eitt jólalag ásamt því að taka létt jólaspjall við útvarpskonuna Völu Eiríks sem stýrt hefur tónleikaröðinni frá upphafi. „Mér fannst þessi þriðja tónleikaröð takast frábærlega. Allir fengu að skína og sýna sinn karakter, sem gerir mig hamingjusama. Það kom mér einnig skemmtilega á óvart í jólaþættinum hvað hann inniheldur fjölbreytt lagaval. Mér fannst val þeirra á jólalögum ekki vera fyrirsjáanleg sem gerði þáttinn bara enn skemmtilegri.“ Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi nóvember en þetta er þriðja árið í röð sem tónleikaröðin er haldin. Búið er að taka alla tónleikana upp sem fóru fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Lokaþátturinn var tekinn upp í október þegar fæstir eru að hugsa um jólin. Hvernig tókst að koma sér í jólagírinn á þeim tíma? „Ha ha ha, það var æði! Ég er svo mikið jólabarn að þetta hentaði mér vel.“ Þeir flytjendur sem komu fram í Bylgjan órafmögnuð í ár voru þau Jóhanna Guðrún, Klara Elías, Friðrik Dór, Una Torfa, Ragga Gísla og Jónas Sig.
Bylgjan órafmögnuð Bylgjan Tónlist Jól Menning Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira