Fujimori laus úr fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 7. desember 2023 09:55 Alberto Fujibmori yfirgaf fangelsið með andlitsgrímu og í fylgd tveggja barna sinna – Kenji og Keiko Fujimori. AP Alberto Fujimori, fyrrverandi forseta Perú, hefur verið sleppt eftir að hafa afplánað rúmlega fimmtán ár í fangelsi.
Mörg hundruð stuðningsmanna forsetans fyrrverandi hópuðust í kringum bílinn þegar hann yfirgaf Barbadillo-fangelsið í höfuðborginni Líma í gærkvöldi. Hinum 85 ára Fujimori var sleppt eftir að stjórnlagadómstóll landsins staðfesti sex ára gamla náðun forseta landsins. Fujimori var á sínum tíma dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir spillingar- og mannréttindabrot á þeim tíma er hann gegndi embætti forseta. Hann var kjörinn forseti árið 1990 og gegndi embættinu til 2000. Forsetinn fyrrverandi, sem er mjög umdeildur í Perú, yfirgaf fangelsið með andlitsgrímu og í fylgd tveggja barna sinna – Kenji og Keiko Fujimori sem beið nauman ósigur í síðustu forsetakosningum. Í frétt BBC segir að stuðningsmenn Alberto Fujimori líti svo á að hann hafi í valdatíð sinni bjargað landinu frá hryðjuverkum og efnahagshruni, en andstæðingar hans líta svo á að hann hafi verið brotið niður lýðræðislegar stofnanir landsins í þeim tilgangi að tryggja eigin völd. Þegar Fujimori var dæmdur í 25 ára fangelsi, þá sjötugur að aldri, gerðu flestir Perúmenn ráð fyrir að hann myndi verja því sem hann ætti eftir ólifað í fangelsi. Í desember 2017 var hann hins vegar fluttur úr fangelsinu og á sjúkrahús vegna vanheilsu sinnar.
Perú Tengdar fréttir Samþykkja að Fujimori skuli sleppt úr fangelsi Stjórnlagadómstóll Perú hefur úrskurðað að forsetanum fyrrverandi, Alberto Fujimori, skuli sleppt úr fangelsi. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 2007 eftir að hafa verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni. 18. mars 2022 14:17 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira
Samþykkja að Fujimori skuli sleppt úr fangelsi Stjórnlagadómstóll Perú hefur úrskurðað að forsetanum fyrrverandi, Alberto Fujimori, skuli sleppt úr fangelsi. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 2007 eftir að hafa verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni. 18. mars 2022 14:17