Wolt auðveldar fyrirtækjum lífið með heimsendum mat Wolt 13. nóvember 2023 08:31 Finnski tæknirisinn Wolt ýtti í dag úr vör fyrirtækjaþjónustu sinni Wolt for Work. Hún gerir fyrirtækjum kleift að panta fjölbreyttar veitingar og vörur handa starfsfólki sínu sem afhentar eru á vinnustaðnum. Nú býður Wolt upp á fyrirtækjaþjónustu með heimsendingum á mat og matvöru fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Wolt, finnski tæknirisinn og leiðandi heimsendingaþjónustan á Íslandi, ýtti í dag úr vör fyrirtækjaþjónustu sinni Wolt for Work. Þjónustan er að erlendri fyrirmynd en hún gerir fyrirtækjum kleift að panta fjölbreyttar veitingar og vörur handa starfsfólki sínu sem afhentar eru á vinnustaðnum. Kerfið heldur utan um allar pantanir starfsfólks og sendir eina kvittun í lok tímabilsins. Í Wolt-appinu og á vefsíðu fyrirtækisins geta starfsmenn nú pantað mat og matvöru frá rúmlega 250 veitingastöðum og smásöluaðilum á Íslandi. Wolt hóf rekstur í Reykjavík í maí og varð þar með fyrsta verkvangsfyrirtækið (e. platform-company) á Íslandi og Íslendingar hafa tekið skilvirkri og notendavænni þjónustu Wolt fagnandi. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á undanförnum mánuðum en heimsendingar þess ná nú til um 70% landsmanna. Auk þess að sendast með vörur og veitingar á höfuðborgarsvæðinu hóf Wolt jafnframt heimsendingar í Reykjanesbæ fyrir skömmu. David Scavera er sölustjóri Wolt for Work á Íslandi og í Noregi. „Við erum mjög spennt að geta loksins fengið Wolt for Work til Íslands. Frá því að við hófum starfsemi á Íslandi í maí hafa viðbrögðin verið einkar jákvæð, enda kom snemma í ljós að neytendur höfðu beðið eftir heimsendingarþjónustu sem okkar. Nú erum við að koma með sama frábæra úrvalið og hröðu afhendinguna á fyrirtækjamarkaðinn. Af viðbrögðunum frá íslenskum fyrirtækjum að dæma hingað til er þetta eitthvað sem þau hafa líka beðið eftir,“ segir David Scavera, sölustjóri Wolt for Work á Íslandi og í Noregi. Við hjá Hopp erum rosalega ánægð með Wolt for Work!Starfsfólkið er himinlifandi yfir úrvalinu og hraða heimsendinganna, viðbragðstíma þjónustuversins og svo skemmir ekki fyrir að þetta minnkar matarsóun. Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun og að fá eina kvittun í lok mánaðars flýtir fyrir í bókhaldinu okkar.Hildur María Hjaltalín Jónsdóttir COO Hopp Nýleg könnun í Noregi sýndi að 45 prósent skrifstofustarfsmanna telja að einföld leið til að panta mat myndi auðvelda vinnudaginn, sérstaklega þegar unnið er fram eftir. Þriðjungur sagðist jafnframt vera óviss um hvernig ætti að panta mat á vinnustaðinn að loknum hefðbundnum vinnudegi. „Yfirvinna í hugum margra skrifstofumanna felur í sér að borða óhollt snarl, panta pizzu eða vinna án nauðsynlegrar næringar til að halda starfseminni gangandi. Með Wolt for Work höfum við auðveldað starfsmönnum að panta og greiða fyrir mat um leið og við gefum fyrirtækjum betri stjórn á heildarkostnaði og því hvað starfsmenn panta,“ segir Scavera. Í Wolt-appinu og á vefsíðu fyrirtækisins geta starfsmenn pantað frá rúmlega 250 veitingastöðum og smásöluaðilum á Íslandi. Með Wolt for Work geta fyrirtæki boðið starfsmönnum sínum upp á einfalda veitingaþjónustu, með snjöllum lausnum fyrir greiðslur og reikningagerð. Þá gerir Wolt for Work fyrirtækjum kleift að panta mat og skrifstofuvörur í gegnum einn söluaðila, sem einfaldar utanumhald og eykur yfirsýn. Fyrirtæki geta fylgst með notkun, stöðu reikninga, stjórnað aðgengi starfsmanna að þjónustunni, ákvarðað heimildir fyrir einstaklinga eða deildir innan fyrirtækisins og fengið einkaafslátt frá völdum stöðum. Nánari upplýsingar um Wolt for Work má nálgast á heimasíðu Wolt.
Matur Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira