Innlent

Heilbrigðisráðherra reddaði vatninu í Aratungu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mætti á fundinn í Aratungu til að hlusta á íbúa og svara fyrirspurnum þeirra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mætti á fundinn í Aratungu til að hlusta á íbúa og svara fyrirspurnum þeirra. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikill kurr er á meðal íbúa í uppsveitum Árnessýslu, ekki síst í Bláskógabyggð verði niðurstaðan sú að loka eigi heilsugæslustöðinni í Laugarási og opna nýja stöð á Flúðum eða á öðrum þéttbýlisstöðum í uppsveitunum. Heilbrigðisráðherra mætt á fund með íbúum til að hlusta á þeirra sjónarmið.

Hann var þétt setinn bekkurinn í félagsheimilinu Aratungu síðdegis í gær á fundi, sem stóð fram á kvöld með forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og heilbrigðisráðherra, auk annarra starfsmanna heilbrigðisstofnunar til að ræða málefni heilsugæslunnar í Laugarási.

Bekkurinn var þétt setinn í Aratungu í Bláskógabyggð.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Ég get bara sagt það fyrir mitt leyti og örugglega fyrir hönd margra í Laugardal og jafnvel Grímsnesi að ef það verður farið með þetta t.d. upp á Flúðir þá getum við alveg eins keyrt á Selfoss, það er orðið styttra,” sagði Kjartan Lárusson íbúi í Bláskógabyggð þegar hann fór upp í ræðustól.

Fram kom á fundinum að það þyrfti að fara í viðhald á húsnæði heilsugæslustöðvarinnar í Laugarási verði hún áfram þar fyrir um 125 milljónir króna en á sama tíma væri nýtt laust húsnæði á Flúðum, sem væri jafn vel hægt að flytja stöðina í.

Sumum fundarmönnum svelgdist svo á í gær að heilbrigðisráðherra þurfti að koma til bjargar með vatnsglas fyrir viðkomandi.

„Það er ömurlegt að standa hér og horfa á vini sína hér í Hrunamannahreppi og þú heyrðir tóninn í síðasta ræðumanni, að þurfa að vera, ekki bara í þessum málefnum, heldur nánast öllum málefnum, sem við tökum fyrir núna í einhverjum hasar og átökum, sem hefur aldrei verið og við erum bara mjög ósátt við það,” sagði Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir íbúi í Bláskógabyggð, sem fékk vatnið hjá ráðherra.

Willum Þór reddaði vatninu fyrir Guðrúnu svo hún gæti haldið áfram með ræðuna sína. Uppákoman vakti mikla kátínu í salnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvað segir heilbrigðisráðherra yfir þessari stöðu í uppsveitum Árnessýslu?

„Það á eftir að gera hellings vinnu til að finna út úr hvort að annað húsnæði hentar betur og þá hvort það sé staðsetning hentar fyrir íbúana. Sú vinna er bara á eftir,” segir Willum Þór Þórsson.

En er heilsugæslustöðin í Laugarási á leiðinni á Flúðir eins og margir tala um?

„Það er ekkert sem liggur fyrir í þeim efnum, engin ákvörðun verið tekin,” segir Willum Þór.

Húsið á Flúðum, sem hefur verið nefnt að heilsugæslan flytji í, endinn niðri þar sem Almarsbakaríi var með sína starfsemi Magnús Hlynur Hreiðarsson
Díanna Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fór yfir stöðu málsins á fundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×