Endurhannaður og langdrægari Hyundai Kona frumsýndur Hyundai á Íslandi 6. október 2023 11:54 Á morgun laugardag frumsýnir Hyundai á Íslandi nýjan og endurhannaðan Hyundai KONA í þremur útgáfum; hreinan og langdrægari rafbíl, tvinnbíl og fjórhjóladrifinn bensínbíl. Í samanburði við fráfarandi kynslóð Hyundai Kona er nýi bíllinn í senn breiðari, lengri og hærri en áður. Hyundai á Íslandi frumsýnir á laugardag, 7. október milli kl. 12 og 16, nýjan og endurhannaðan Hyundai KONA í þremur útgáfum; hreinan og langdrægari rafbíl, tvinnbíl og fjórhjóladrifinn bensínbíl og verða allar útgáfur til taks fyrir áhugasama sem koma, kynna sér og reynsluaka rétta bílnum fyrir sínar þarfir.
Meira pláss og meiri gæði Í samanburði við fráfarandi kynslóð Hyundai Kona er nýi bíllinn í senn breiðari, lengri og hærri en áður, auk þess að hafa meira hjólhaf, sem eykur rými fyrir bæði fólk og farangur. farangursplássið er 466 lítrar eða um 30% meira en áður. Í rafbílnum Kona Electric er að auki 27 lítra aukarými fyrir meiri farangur undir „húddinu“. Sem dæmi um góða hagkvæmni má nefna að í Kona leggjast aftursætisbökin niður 40-20-40 og sé miðbakið lagt niður er t.d. leikur einn að koma fyrir fjórum skíðapörum milli aftursætisfarþeganna. Allt að 514 km drægni Kona Electric hefur frá upphafi verið vinsælasta útfærsla þeirra þriggja gerða bílsins sem mögulegt er að velja um. Hjá Hyundai á Íslandi er Kona Electric fáanlegur í tvenns konar Comfort-útfærslu auk Style og Premium. Í Comfort er val um 48 kWh eða 65 kWh rafhlöðu en bæði Style og Premium gerðirnar eru búnar 65 kWh rafhlöðu sem hefur allt að 514 km drægni við bestu mögulegu aðstæður samkvæmt mælistaðli WLTP. Með DC hraðhleðslu (101 kW) er unnt að hlaða viðbótarorku fyrir rúmlega 160 km akstur á aðeins 15 mínútum. Vandaður og tæknivæddur Mjög er vandað til alls frágangs í farþegarými Kona, óháð útfærslu, og er nýi bíllinn einn sá best búni í B-stærðarflokki sportjeppa. Við ökumann og farþega í framsætum er miðlægur bogadreginn tvískiptur 12,3 tommu upplýsinga- og afþreyingarsnertiskjár og fyrir ökumann er 12,3 tommu stafrænt mælaborð sem speglar einnig nauðsynlegustu upplýsingum á framrúðuna (HUD). Þá er Kona einnig búinn nýju leiðsögukerfi sem getur nálgast nýjar uppfærslur eftir þráðlausum leiðum (OTA). Að auki býður Kona þann möguleika að nota síma í stað lykils til að veita aðgang að bílnum. Einnig eru allar gerðir Kona búnar vönduðu Bose hljóðkerfi með 7 hátölurum en Premium er að auki með bassahátalara. Nánari upplýsingar um ítarlegan þæginda- og öryggisbúnað, þar á meðal tæknivætt ökuaðstoðarkerfi Hyundai Kona, eru að finna í verðlista á Hyundai.is. Hyundai á Íslandi er til húsa í Kauptúni Garðabæ.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira