Lið FM957 byrjar vel í leiknum Leikið um landið Leikið um landið 25. september 2023 16:16 Egill Ploder og Rikki G skipa lið FM957. Þeir unnu fyrstu þrautina þar sem þeir bjuggu til glæsilegan blómvönd. Lið FM957 sigraði fyrstu þrautina í leiknum Leikið um landið sem fór fram fyrr í dag. Í leiknum skora Bylgjan, FM957 og X977 á hver aðra í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.
Fyrsta þrautin var keppni um fallegasta blómvöndinn en þá söfnuðust liðin saman hjá blómaheildsölunni Samasem við Grensásveg í Reykjavík. Sam Mansour, eigandi Samasem, var dómari en honum fannst allir blómvendirnir þrír vera fallegir. Eftir mikla umhugsun kvað hann upp dóminn og lýsti lið FM957 sem sigurvegara. Lið FM957 fékk því þrjú stig, lið Bylgjunnar fékk tvö stig og X977 fékk eitt stig. Klippa: Leikið um landið - fyrsta þraut Lið útvarpsstöðvanna þriggja eru skipuð tveimur þátttakendum og berst leikurinn kringum landið þar sem skemmtilegar áskoranir bíða þeirra. Fylgist með hér á Vísi! Lið Bylgjunnar skipa þær Sigga Lund og Þórdís Valsdóttir, lið FM957 skipa Egill Ploder og Rikki G og fyrir hönd X977 keppa Tommi Steindórs og Ingimar. Strákarnir hjá FM957 komu andstæðingum sínum á óvart með því að vera óvenju vel undirbúnir. „Það sem við ætlum okkur að gera er að tengja saman allar tilfinningar mannsins eftir litum blómanna. Það verður saga í okkar blómvendi,“ sagði Egill þegar hann útskýrði samsetningu blómvandarins fyrir dómaranum fyrir hönd þeirra félaga. „Eins og við sjáum á blómvendinum okkar er grænn litur mjög ríkjandi. Græni táknar að sjálfsögðu nýtt upphaf en við erum að leggja af stað í nýtt ferðalag.“ „Ertu með handrit?“ spurði Þórdís Valsdóttir úr Bylgjuliðinu undrandi á svip. „Græni liturinn er einhvern veginn táknrænn fyrir það,“ hélt Egill áfram á lét Þórdísi ekki slá sig út af laginu. Og áfram hélt Egill sem ætlaði sér greinilega að skora þrjú stig hjá dómaranum. „Blái liturinn táknar alls konar mysteríu sem er í gangi enda vitum við ekki hvað við erum að fara gera næstu daga og hvaða þrautir taka við. Svo í enda ferðarinn verður við öll full af þakklæti sem er svolítið bleiki liturinn í blómvendinum.“ Næsta þraut fer fram síðar í dag en þá heimsækir hópurinn Zipline Iceland á Vík. Þar má búast við skemmtilegum tilþrifum og adrenalínkikki þegar keppendur renna sér niður eftir zipplínunni. Fylgjast má með á samfélagsmiðlum X977 , FM957 og Bylgjunnar og liðin verða einnig með innkomur í loftinu við hverja þraut. Fylgist með hér á Vísi!
Leikið um landið Bylgjan FM957 X977 Mest lesið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Umhugsunarefni fyrir foreldra vegna komu jólasveinanna Lífið Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Lífið Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Lífið Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Sjá meira