Hér má sjá tónlistarmyndbandið, sem er eftir Þorlák Bjarka og FilmByFred:
„Þetta er lag frá árinu 2020 sem er tekið upp rétt eftir að ég og M Can gerðum lagið Haltu Kjafti. Það er búið að vera pæling að gefa það út í alveg þrjú ár,“ segir Birgir Hákon í samtali við blaðamann.
„Svo byrjaði Issi að gefa út tónlist og mér fannst meika sens að hann prófaði að hoppa á þetta lag, sem kom mjög vel út. Birnir var í sessioni í öðru herbergi í sama húsnæði á þessum tíma og hann kíkti yfir á okkur. Það tók hann svo bara um korter að semja og taka upp erindið sitt.“

Birgir Hákon segir hugmyndina á bak við myndbandið hafa verið að veita smá innsýn í þeirra eigin heim.
„Það er þannig séð ekki mikið meira á bak við það nema bara að gefa aðdáendum gott og skemmtilegt visual sem lýsir laginu, segir Birgir Hákon að lokum.
Hér má hlusta á 16 Bars á streymisveitunni Spotify og hér á Youtube.