Hetja C-deildarliðs Lincoln lék með Kórdrengjum fyrir tveimur árum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. ágúst 2023 09:31 Lukas Bornhøft Jensen reyndist hetja Lincoln í gær, en hann lék með Kórdrengjum í Lengjudeildinni fyrir tveimur árum. Accrington Stanley Danski markvörðurinn Lukas Bornhøft Jensen varði tvær vítaspyrnur er C-deildarlið Lincoln City sló úrvalsdeildarlið Sheffield United úr leik í enska deildarbikarnum í vítaspyrnukeppni í gær. Árið 2021 lék þessi danski markvörður með Kórdrengjum í Lengjudeildinni hér á Íslandi.
Jensen hefur verið á nokkru flakki eftir að atvinnumannaferillinn hófst, en þó lengst af á Englandi. Hann hóf ferilinn hjá Helsingør í heimalandinu áður en hann færði sig yfir til HIK árið 2019. Eftir að hafa leikið aðeins sex deildarleiki fyrir HIK var Jensen svo keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins Burnley. Markvörðurinn náði aldrei að spila leik fyrir félagið, en var þess í stað lánaður á nokkra staði á tíma sínum hjá Burnley. Hann var lánaður til Bolton Wanderers, Carlisle United, Accrington Stanley og sumarið 2021 til Kórdrengja í Lengjudeildinni á Íslandi. Með Kórdrengjum lék hann sjö leiki, vann fjóra þeirra og gerði þrjú jafntefli. Jensen fór svo frítt til Lincoln frá Burnley fyrir tímabilið og reyndist hetja liðsins í 2. umferð enska deildarbikarsins í gær. Hann varði tvær spyrnur í vítaspyrnukeppninni eftir markalaust jafntefli og var valinn maður leiksins. Lincoln hafði að lokum betur í vítaspyrnukeppninni, 3-2, og er því á leið í 3. umferð þar sem annað úrvalsdeildarlið, West Ham, bíður þeirra.
Enski boltinn Kórdrengir Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Sjá meira