Innlent

Katrín náði að skreppa í bæinn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Katrín náði að skreppa í miðbæinn og sjá Íslandsstræti. Gatan fékk nafnið í þakklætisskyni eftir að Ísland viðurkenndi sjálfstæði Litáen fyrst allra þjóða árið 1991.
Katrín náði að skreppa í miðbæinn og sjá Íslandsstræti. Gatan fékk nafnið í þakklætisskyni eftir að Ísland viðurkenndi sjálfstæði Litáen fyrst allra þjóða árið 1991. Facebook

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er þessa stundina stödd í Vilníus, höfuðborg Litáens, þar sem leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefur staðið yfir í gær og í dag. Katrín hefur ekki áður komið til borgarinnar og náði hún að skreppa í miðbæinn á götuna sem kennd er við Ísland.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til þessarar fallegu borgar og ég náði að skjótast á götuna sem kennd er við Ísland en eins og kunnugt er viðurkenndu Íslendingar sjálfstæði Litháens fyrst þjóða,“ segir Katrín í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni í dag.

Íslandsstræti í Vilnius fékk nafn sitt eftir að Ísland viðurkenndi lýðveldið Litáen, fyrst allra ríkja.Facebook

Þar fer hún einnig um það sem farið var yfir á fundinum. Þar hafi verið fjallað um innrás Rússa í Úkraínu, stöðuna í stríðinu, aukið samstarf Úkraínu og Atlantshafsbandalagsins og varnaráætlanir bandalagsins. Þá hafi inngöngu Finnlands í bandalagið verið fagnað og gefið vilyrði um að Svíþjóð verði bráðlega fullgildur meðlimur í því. Katrín segir að það megi teljast söguleg tíðindi.

Katrín ræðir hér við Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs.Facebook

„Fyrir utan öll þessi mál gerði ég afvopnunarmál að sérstöku umtalsefni en þar er staðan grafalvarleg. Kjarnorkuógnin er orðin áþreifanlegri en hún hefur verið lengi og afvopnunarsamningar hafa raknað upp einn af öðrum á undanförnum árum.“

Katrín ræðir hér við Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar.Facebook

Einnig átti Katrín tvíhliðafundi með Ingridu Šimonytė, forsætisráðherra Litháens og Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands. 

Katrín átti fund með Ingridu Šimonytė, forsætisráðherra Litáens.Facebook
Katrín ásamt Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands. Ríkisstjórn Rutte sprakk á dögunum og undirbýr hann sig nú fyrir kosningabaráttu.Facebook

Núna er stefnan sett á Helsinki en þar mun Katrín, ásamt öðrum norrænum þjóðarleiðtogum, eiga fund með forseta Bandaríkjanna, Joe Biden.

Katrín ásamt forsætisráðherrum Norðurlandanna og aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.Facebook



Fleiri fréttir

Sjá meira


×