Fjölmargir Íslendingar yfirgáfu vonda veðrið á fimmtudag og föstudag og héldu til móts við stuð og stemmningu í betra veðri. Meðal þeirra sem sáust í Saga Business lounge á fimmtudeginum var Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ásamt Helgu Viðarsdóttur unnustu sinni.
Gestir í lounge-inu tóku vel eftir Ásgeiri sem stóð í ströngu á miðvikudaginn þar sem tilkynnt var um 1,25 stigs prósentustiga hækkun stýrivaxta til að sporna við verðbólgu.
Áfangastaður Ásgeirs liggur ekki fyrir en allar líkur á að hann hafi verið með elskunni sinni Helgu sem birti mynd af sér með góðri vinkonu á glæsihótelinu Hotel Dubrovnik Palace í króatíska strandbænum Dúbrovnik.
Íslendingadjamm í Króatíu
Árshátíð Kviku banka var haldin með pompi og prakt í króatísku borginni Split, þar sem yfir sex hundruð manns mættu og skemmtu sér undir veislustjórn fjölmiðlamannsins Sigga Gunnars.
Leikkonan María Thelma Smáradóttir var á meðal þeirra sem skemmtu sér með liðsmönnum Kviku og birti myndir frá herlegheitunum.
Toyota hélt árshátíð starfsmanna í Kaupmannahöfn í glæsihýsinu Molkets Palæ, sem er yfir þrjú hundruð ára gömul bygging. Skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannesson héldu þar uppi stuðinu ásamt tónlistarkonunni Bríet og plötusnúðnum Röggu Hólm.
Skemmtikrafturinn Eva Ruza birti mynd af sér í kjól sem er afar líkur kjól sem raunveruleikastjarnan Kim Kardashian klæddist fyrir skemmstu, nema Eva gat rennt sínum upp eins og hún segir.
Þá hélt Öryggismiðstöðin árshátíð fyrir sitt fólk í Berlín. Atli Þór Albertsson og Eyþór Ingi voru veislustjórar en Selma Björns mætti og tryllti lýðinn með slögurum úr öllum áttum. Siggi Hlö sá svo um tónlistina inn í nóttina.
Þá fagnaði Blush með árshátíð í Barcelona.
Stjörnufans í brúðkaupi í Feneyjum
Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson og Kristrún Ólöf Sigurðardóttur buðu líklega til brúðkaups ársins – hvað Íslendinga varðar – í listaborginin Flórens á Ítalíu. Verðið lék við parið ástfangna og gesti sem voru fjölmargir. Sérstaklega var vel skipað með listamanna sem tróðu upp hver á fætur öðrum.
Aðalsteinn, stundum nefndur Alli ríki eins og kvótagoðsögn af Austfjörðum, flaug Páli Óskari til Flórens og var sannkölluð flugeldasýning þegar Palli tók sína helstu slagara. Hljómsveitin Vök var á svæðinu, Salka Sól sömuleiðis, Snorri Helga og Saga Garðars, Högni í Hjaltalín og Snæfríður Ingvars. Þá var Valdimar Guðmundsson sömuleiðis viðstaddur og söng fyrir gesti.
Hermannsdætur og Inga Lind í Barcelona
Fyrrnefnd Saga og Snorri voru í Barcelona á dögunum og sáu þar sjálfan Bruce Springsteen troða upp. Þessa helgina voru Chris Martin og félagar í Coldplay með tónleika í Katalóníu. Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlakona, sem bjó um árabil í Barcelona, lét sig ekki vanta þegar talið var í helstu slagarana.
Inga Lind hefur verið á faraldsfæti en rúm vika er síðan hún naut lífsins í Portúgal með vinkonum sínum í golfinu.
Fleiri íslenskar glæsikonur voru í Barcelona um helgina og færðu samviskusamlega til bókar á samfélagsmiðlum. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona, Lára Björg Björnsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, systurnar Eva Laufey og Edda Hermannsdætur. Vinkonurnar gerðu vel við sig í mat og drykk og Eva Laufey skellti sér út að skokka.
Paraferð til Bahamaeyja
Athafnakonan Móeiður Lárusdóttir og knattspyrnumaðurinn Hörður Björgvin Magnússon nutu lífsins í rómtantískri paraferð á Bahamaeyja þar sem þau böðuðu sig meðal annars með svínum í sjónum.
Hesthúsadjamm og litli frændi með á þing
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra skellti sér á svakalegt hesthúsadjamm með vinkonum sínum í hesthúsabyggðinni nærri Guðmundarlundi. Riðið var út og svo blásið til veislu þar sem dansað var við hina ýmsu slagara á borð við Cotton Eyed Joe og Despacito. Nína Dögg Filippusdóttir leikkona var í miklu stuði og fleiri leikkonur.
Arnþór Ingi Kristinsson mætti með gítarinn og svo ætlaði allt um koll að keyra þegar súkkulaðierfinginn og poppstjarnan Patrik Atlason mætti á svæðið.
Áslaug Arna var svo mætt á þingið seinni part dags á annan í hvítasunnu með lítinn frænda sinn með sér. Hún fékk aðstoð annarra þingmanna til að gæta Sigurbjörns litla á meðan hún steig í pontu.
Sendi eiginkonunni fallega afmæliskveðju
Listamaðurinn Elli Egilsson birti einlæga afmæliskveðju til eiginkonu sinnar og leikkonunnar Maríu Birtu Bjarnadóttur á Instagram í tilefni af 35 ára afmæli hennar í gær þar sem hann lýsir henni sem hjartahlýrri og dásamlegri móður.
Ferð til borg ástarinnar
Hjónin Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknar og verðandi borgarstjóri, og Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, nutu lífsins saman í París, hinni rómantísku höfuðborg Frakklands.
Aflslöppuð á Spáni
Grínistinn og leikkonan Birna Rún Eiriksdóttir slakar á og gerir vel við sig í sólinni í spænska bænum Sitges á milli þess sem hún tekur brekkuspretti og fær sér ís.
Stelpukvöld í Reykjavík
Vinkonurnar og raunveruleikastjörnurnar Birgitta Líf Björnsdóttir og Sunneva Einarsdóttir fór út á lífið um helgina og létu veðrið ekki stoppa sig í klæðnaði.
Ástrós Trausta dansari og áhrifavaldur mætti í smart leðurrykfrakka út á lífið.
Glimmerþingkona í miðbænum
Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, klæddi sig eftir veðri þegar sólin skein í vikunni og gekk um götur borgarinnar í glitrandi og smart í glimmerjakka.
Fæðingarorlofið fært til Köben
Elísabet Gunnars, áhrifavaldur og tískuskvísa, skrapp til Kaupmannahafnar með Önnu Fríðu Gísladóttur, forstöðumanni markaðsmála hjá Play, þar sem sólin skein sínu skærasta. Báðar eru þær í fæðingarorlofi og virtust þær eiga ljúfa stund með litlu krílunum með kaffi í hönd í fallegum almenningsgarði.
Kampavín í Stokkhólmi
Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró, biður Ísland um að rífa sig í gang. Á meðan sleikir hann sólina í Stokkhólmi í Svíþjóð með kampavínsglas í hönd.
Jón Dagur Þorsteinsson og Soffía Gunnarsdóttir nefndu litlu prinsessuna sína Díönu Lilju um helgina.
Misstum við af einhverju sem hefði átt að rata í Stjörnulífið? Sendu okkur línu á lifid@visir.is. Fullum trúnaði heitið.