Innlent

Vonast til þess að af­­gerandi niður­­­staða hafi á­hrif

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. vísir/arnar

Formaður BSRB segist ekkert sérstaklega bjartsýn fyrir fund bandalagsins með Sambandi íslenskra sveitarfélaga í dag. Hún segir það ekki vera rétt að bandalagið hafi áður hafnað þeim samningi sem þau krefjast nú. 

Í dag funduðu samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga í fyrsta sinn síðan félagsmenn BSRB í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum í fjórum bæjarfélögum samþykktu að ráðast í verkfallsaðgerðir um miðjan maímánuð. Tvær vikur eru síðan síðasti fundur var haldinn.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði fyrir fundinn að hún væri ekkert sérstaklega bjartsýn og ætti ekki von á miklu á fundinum í dag.

„Ég auðvitað vonast til þess að þessi afgerandi niðurstaða í atkvæðagreiðslu um aðgerðir hjá okkar félögum hafi áhrif en við verðum bara að sjá til,“ segir Sonja.

Meginkrafa BSRB er að sveitarfélögin leiðrétti það sem þau kalla misrétti í launum þeirra félagsmanna. Starfsmenn í sömu störfum hjá öðrum sveitarfélögum séu með betri kjör.

„Síðan erum við að horfa til þess að það þurfi að auka í fræðslu- og styrktarsjóði hjá okkar félögum. Svo eru okkar félagar að bera sig saman við félagsfólk í sambærilegum störfum hjá Reykjavíkurborg. Þau eru á hærri launum, til dæmis hjá leikskólum og í málefnum fatlaðs fólks. Þannig það þarf að leiðrétta það líka,“ segir Sonja.

Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur vísað fullyrðingum BSRB um misrétti ítrekað á bug og segja bandalagið hafa hafnað þeim samningi sem þau krefjast nú. Sonja segir að svo sé ekki.

„Þau eru að vísa til þess að í síðustu kjarasamningsviðræðum hafi þau boðið þetta, en það er ágreiningur um það. Við erum ekki sammála því. Það var sannarlega rætt um mismunandi gildistíma en ekki að það kæmi til launahækkunar í janúar,“ segir Sonja.


Tengdar fréttir

Slá ekki af kröfum sínum þegar þeim er mætt af ó­bil­girni

Félagar BSRB sem starfa í leikskólum, grunnskólum og frístundarheimilum í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur eru á leið í verkfall en félagsmenn samþykktu það í dag. Formaður félagsins segir ljóst að verkföll myndu hafa talsverð áhrif en deilan við Samband íslenskra sveitarfélaga sé í hnút. Sambandið komist ekki fram hjá lagalegri skyldu sinni.

Gefa hvorugt eftir í deilunni og verkföll yfirvofandi

Hátt í þúsund félagsmenn BSRB í fjórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu munu að óbreyttu leggja niður störf í næsta mánuði, í kjölfar deilna stéttarfélagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Lögmaður hjá sambandinu segir stéttarfélagið þurfa að bera ábyrgð á því að hafa hafnað samningi sem bauðst á sínum tíma en formaður BSRB segir að leiðrétta þurfi misréttið. 

Vísa fullyrðingum BSRB um mis­rétti á bug

Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) vísar fullyrðingum BSRB um misrétti í launum milli starfsfólks sem heyra undir kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands annars vegar og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB hins vegar á bug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×