Hjálpuðu geimverur við smíði lagsins? SS 28. apríl 2023 11:16 Alexander Orri kynnir hér lokaútgáfu sína af nýja SS pylsulaginu. Seinni umferð Skúrsins hefst í dag en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu auk þess sem keppt er um besta frumsamda lagið. Í fyrri umferð kynntumst við flytjendunum sex og heyrðum brot úr fyrstu útgáfum laga þeirra. Nú hefur hópurinn haft góðan tíma til að fínpússa bæði lögin og gera ýmsar breytingar á þeim. Í þessum þætti er lokaútgáfa Alexanders Orra af SS pylsulaginu kynnt til sögunnar en hann er með skemmtilega dansútgáfu af laginu. Dómnefnd kom m.a. með þá athugasemd að það gæti verið sniðugt að bæta við gítar og jafnvel einhverju fleira. „Sölku fannst fyrri útgáfa mín vera aðeins of mikil endurtekning og stakk upp á því að ég myndi brjóta lagið meira upp. Ég bætti því inn gítarkafla og strengjum og smá rokkgítar. Síðan vildi ég bara hafa lagið hresst og skemmtilegt, að hafa gott líf í því eins og dómnefndin minntist á. Ég bjó líka til smá fiðlubút og eyðilagði hann í forritinu þannig að útkoman er skrýtinn taktur sem hljómar eins og geimverutæki en er notaður til að fylla inn í lagið.“ Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Sjöundi þáttur Ef Alexander Orri vinnur keppnina segist hann ætla að nota verðlaunaféð í að fjárfesta í fleiri tónlistargræjum. „Þá mun ég kaupa fleiri skemmtileg tæki og tól til að búa til enn meiri tónlist.“ Á næstu dögum verða hinir flytjendurnir fimm kynntir til sögunnar. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja um leið besta frumsamda lagið. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið. Skúrinn Tónlist Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Mun aldrei flytja aftur heim Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Segir nei takk við jakkafatapésana Tíska og hönnun Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
Í fyrri umferð kynntumst við flytjendunum sex og heyrðum brot úr fyrstu útgáfum laga þeirra. Nú hefur hópurinn haft góðan tíma til að fínpússa bæði lögin og gera ýmsar breytingar á þeim. Í þessum þætti er lokaútgáfa Alexanders Orra af SS pylsulaginu kynnt til sögunnar en hann er með skemmtilega dansútgáfu af laginu. Dómnefnd kom m.a. með þá athugasemd að það gæti verið sniðugt að bæta við gítar og jafnvel einhverju fleira. „Sölku fannst fyrri útgáfa mín vera aðeins of mikil endurtekning og stakk upp á því að ég myndi brjóta lagið meira upp. Ég bætti því inn gítarkafla og strengjum og smá rokkgítar. Síðan vildi ég bara hafa lagið hresst og skemmtilegt, að hafa gott líf í því eins og dómnefndin minntist á. Ég bjó líka til smá fiðlubút og eyðilagði hann í forritinu þannig að útkoman er skrýtinn taktur sem hljómar eins og geimverutæki en er notaður til að fylla inn í lagið.“ Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Sjöundi þáttur Ef Alexander Orri vinnur keppnina segist hann ætla að nota verðlaunaféð í að fjárfesta í fleiri tónlistargræjum. „Þá mun ég kaupa fleiri skemmtileg tæki og tól til að búa til enn meiri tónlist.“ Á næstu dögum verða hinir flytjendurnir fimm kynntir til sögunnar. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja um leið besta frumsamda lagið. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið.
Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja um leið besta frumsamda lagið. Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið.
Skúrinn Tónlist Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Mun aldrei flytja aftur heim Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Segir nei takk við jakkafatapésana Tíska og hönnun Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira