Innlent

Öll tilboð í nýja Hamarshöll talin of há

Árni Sæberg skrifar
Hamarshöllin í Hveragerði áður en hún hrundi í óveðri. Meirihluti bæjarstjórnar vill ekki reisa annað uppblásið íþróttahús.
Hamarshöllin í Hveragerði áður en hún hrundi í óveðri. Meirihluti bæjarstjórnar vill ekki reisa annað uppblásið íþróttahús. VÍSIR/MAGNÚS HLYNUR

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á dögunum að hafna öllum tilboðum sem bárust í byggingu nýrrar Hamarshallar. Ástæðan er sögð sú að öll tilboð sem bárust hafi verið of há, að teknu tilliti til fjárhagsáætlunar bæjarins.

Í fundargerð fyrir fund bæjarstjórnar sem haldinn var þann 3. apríl síðastliðinn segir að tilboðin hafi verið fimm talsins og hljóðað upp á frá rúmlega 1,2 milljarða króna til ríflega 2,4 milljarða króna.

Kostnaðaráætlun fyrir verkið hafi verið 1,1 milljarður króna. Einungis munar 132 milljónum á kostnaðaráætlun og lægsta boði, sem var frá Stárgrindarhúsum ehf..

Þá samþykkti bæjarstjórn að nýta heimild laga um opinber innkaup til þess að efna til samkeppnisútboðs eða samkeppnisviðræðna við bjóðendur sem uppfylltu hæfiskröfu útboðsskilmála. Bæjarstjóra var falið að hefja þær viðræður strax.

Sjálfstæðismenn sátu hjá

Sú tillaga var samþykkt með fimm atkvæðum en báðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá í atkvæðagreiðslu um hana.

í fundargerð segjast þeir hafa setið hjá í ljósi þess að þeir telji kostnað við bygginguna og framkvæmdatímann áhyggjuefni.

„Þannig er lægsta tilboðið sem kom fram í útboðinu um 64 prósent yfir upphaflegri fjárhagsáætlun. Tilboðin eru það langt umfram getu bæjarfélagsins að lítil sem engin von er til að viðræður við tilboðsgjafana leiði til farsællrar lausnar og muni tefja málið til skaða fyrir bæjarbúa,“ segir í fundargerð.

Þá segir að þeir vilji fara í framkvæmd sem sé fjárhagslega raunhæf fyrir sveitarfélagið, taki stuttan tíma og mæti þörfum íþróttafélagsins og annarra notenda aðstöðunnar. 

„Við erum tilbúin að skoða ýmsar leiðir í því sambandi en bendum t.d. á gervigrasvöll í fullri stærð, viðbyggingu við núverandi íþróttahús eða loftborið hús,“ segja Sjálfstæðismenn.


Tengdar fréttir

Hvergerðingar gera ráð fyrir rúmlega hundrað milljónum króna í bætur

Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis segir framtíð Hamarshallarinnar, sem varð mikið bitbein í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, alfarið vera í höndum nýrrar bæjarstjórnar. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir því að tjónabætur vegna hallarinnar muni nema 108 milljónum króna.

Sjálfboðaliðar fjarlægja dúk Hamarshallarinnar í Hveragerði

Fjöldi sjálfboðaliða er nú við störf í Hveragerði þar sem loftborna íþróttahúsið Hamarshöllin var en hún fauk í miklu óveðri 22. febrúar síðastliðinn. Hlutverk sjálfboðaliðanna er að fjarlægja dúkinn, sem er um sex þúsund fermetrar.

Hvergerðingar taka höndum saman og krakkarnir þakklátir

Hvergerðingar hyggjast taka höndum saman við að endurbyggja Hamarshöllina sem eyðilagðist í óveðrinu sem gekk yfir í gærmorgun og margir ætla að gefa vinnu sína. Þeir segja þetta mikinn skell fyrir samfélagið en ætla að taka þetta á jákvæðninni.

Hamarshöllin í Hveragerði fokin

Hamarshöllin, risa blöðru íþróttahús er fokin og stendur grunnur hússins aðeins eftir. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði staðfesti að höllin hafi fokið snemma í morgun í ofsaveðri í Hveragerði.

Hamarshöllin risin

Nýja Hamarshöllin í Hveragerði er risin. Er þetta fyrsta loftborna íþróttahúsið á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×