Hjartveik börn fá 7,3 milljónir frá Domino's og Hrefnu Sætran Domino´s 24. mars 2023 16:05 Á myndinni eru: Magnús Hafliðason, forstjóri Domino‘s, Fríða Björk Arnardóttir, framkvæmdastjóri Neistans, Hrefna Sætran, pizzahönnuður og matreiðslumeistari. Aftari röð: Agla Jónsdóttir, fjármálastjóri, Ásmundur Atlason, markaðsstjóri, Egill Þorsteinsson, þróunarstjóri stafrænna lausna, Steinar B. Sigurðsson, framkvæmdastjóri innkaupa & framleiðslu. Góðgerðarpizza Domino‘s safnaði 7,3 milljónum fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna dagana 13. til 16. mars. Þetta var í tíunda sinn sem Góðgerðarpizzan var seld og söfnuðust alls 7.345.234 krónur en það er hæsta sala per dag frá upphafi og önnur hæsta sala í sögu verkefnisins. Góðgerðarpizzan er samstarfsverkefni Domino‘s og Hrefnu Sætran og hefur frá árinu 2013 safnað ríflega 59 milljónum fyrir ýmis góðgerðarverkefni. „Góðgerðarpizzan er orðið landsþekkt verkefni sem viðskiptavinir okkar hreinlega bíða eftir ár hvert. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá viðtökurnar í ár á 10 ára afmæli verkefnisins en Góðgerðarpizzan er verkefni sem við erum einkar stolt af og þökkum starfsfólki okkar, MS, Ali og Hrefnu Sætran sérstaklega fyrir þetta langa og farsæla samstarf. Neistinn vinnur gríðarlega þarft og mikið starf fyrir hjartveik börn og aðstandendur þeirra og heiður að geta lagt þeim lið í því.“ segir Magnús Hafliðason, forstjóri Domino‘s á Íslandi. Salan runnið óskipt til verkefna í 10 ár Frá upphafi hefur öll sala góðgerðarpizzunnar ár hvert farið óskipt til verkefnis hvers árs en ekki óljós ágóði eins og oft vill til. Í ár gátu viðskiptavinir fylgst svo með söfnunni á dominos.is ásamt því sjá upplýsingar um hvað þeirra eigin pöntun væri að skila Neistanum í beinhörðum peningum. Samstarfaðilar Domino‘s í verkefninu voru Ali og MS sem styrktu verkefnið með hráefni líkt og fyrri ár. Hrefna Sætran hefur unnið með Domino‘s að góðgerðarpizzunni frá upphafi og í ár var engin breyting þar á en Hrefna hefur frá upphafi gefið alla sína vinnu tengt verkefninu. Eftir frábæran árangur árið 2022 þar sem hvítlaukssósa var í stað pizzasósu var ákveðið að halda áfram með það þema í ár. Pizza árins 2023 var með hvítlaukssósu í stað hefðbundinnar pizzasósu, pepperoni, beikon sneiðum, spínati, grænum eplum, hunangi og truffluosti. Fjölbreytt verkefni í gegnum tíðina Domino‘s og Hrefna hafa unnið saman að verkefninu frá upphafi og þannig stutt við fjölbreytt verkefni með ýmsum hætti. Lögð hefur verið áhersla á að styrkja verkefni sem oft fá ekki nægilega athygli og áforma að nota fjármunina í áþreifanleg verkefni. Meðal þeirra verkefna sem stutt hafa verið er Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar, Konukot, Reykjadalur, Einstök börn og Pieta svo einhver séu nefnd. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir þetta frábæra framtak Domino's og að hafa valið okkur í ár og Hrefnu fyrir að útbúa þessa dásamlega góðgerðarpizzu. Styrkurinn mun nýtast í að útbúa nýtt fræðslu- og upplýsingaefni fyrir aðstandendur hjartbarna og hjartabörnin sjálf. Hjartans þakkir til allra viðskiptavina Domino's fyrir að kaupa góðgerðarpizzuna í ár og hjálpa okkur þar með að stuðla að betri þjónustu fyrir hjartveik börn og þeirra fjölskyldur.“ segir Fríða Björk Arnardóttir, framkvæmdastjóri Neistans. Ferðast tveggja daga gömul utan í hjartaaðgerð Neistinn styður fjölskyldur barna og ungmenna með hjartagalla á margvíslegan hátt – félagslega, efnahagslega og tilfinningalega. Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra t.d. með útgáfu fréttablaðs og upplýsingavef sínum. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu. Matur Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira
Neistinn styður fjölskyldur barna og ungmenna með hjartagalla á margvíslegan hátt – félagslega, efnahagslega og tilfinningalega. Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra t.d. með útgáfu fréttablaðs og upplýsingavef sínum. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.
Matur Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira