Tónlistarárið 2022 var með sanni viðburðaríkt og í tilkynningu frá Íslensku tónlistarverðlaununum segir að það hafi verið stappfullt af nýjum stjörnum í bland við eldri, uppfullt af glæsilegum viðburðum af öllum toga og útgáfa í öllum flokkum tónlistar í sérlegum blóma. Allt þetta má glöggt sjá á tilnefningunum, sem eru afar fjölbreyttar í ár og breiddin mjög mikil.
Landamærin milli tónlistarstefna að mást út
„Fjöldi innsendinga voru í meira lagi, tæplega 800 talsins og verkefnin þar undir mýmörg í öllum flokkum tónlistar. Einnig vekur það athygli dómnefndarfólks sem og aðstandenda hvernig landamærin milli tónlistarstefna eru að mást út þar sem mörg tónskáld og flytjendur flakka á milli þeirra og dvelja ekki við að flokka sín verkefni sérstaklega. Það rímar einnig við þá flóðbylgju ungs og efnilegs tónlistarfólks sem er við það að springa út í sínum fjölbreyttu verkefnum.
Talsverðar breytingar voru gerðar á verðlaunaflokkum í ár, sameinað undir stærri flokka og samræmt milli helstu yfirflokkana. Verðlaunað er fyrir tónlistarflutning, söng, lög/tónverk og hljómplötur eða stærri verk. Nokkur verðlaun eru veitt þvert á alla flokka, s.s eins og fyrir upptökustjórn, myndbönd, viðburði og umslagshönnun. Síðastnefndu verðlaunin verða nú í fyrsta sinn veitt í samvinnu við Félag íslenskra teiknara á svokölluðum FÍT verðlaunum sem afhent verða seinna í mánuðinum,“ segir í tilkynningunni.
Sem dæmi má nefna að djass tónlistarkonan Marína Ósk hlýtur fjórar tilnefningar í ár sem og píanóleikarinn Magnús Jóhann. Gugusar, Friðrik Dór og Ásgeir Trausti eru hvert fyrir sig tilnefnd í þremur flokkum.
Eftirtaldir hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023:
Tónlistarflytjendur ársins
Djasstónlist
- Andrés Þór
- Haukur Gröndal
- Marína Ósk
- Rebekka Blöndal
- Stórsveit Reykjavíkur
Sígild og samtímatónlist
- Barokkbandið Brák
- Jónas Ásgeir Ásgeirsson
- Kammersveit Reykjavíkur
- Sæunn Þorsteinsdóttir
- Víkingur Heiðar Ólafsson
Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
- Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
- Una Torfadóttir
- Magnús Jóhann Ragnarsson
- Friðrik Dór Jónsson
- FLOTT
Önnur tónlist
- Lón
- Mugison
- Magnús Jóhann
- Arnar Guðjónsson
- Guðrún Ólafsdóttir (RÚN)
Söngur ársins
Djasstónlist
- Marína Ósk
- Rebekka Blöndal
- Silva Þórðardóttir
- Steingrímur Teague
- Stína Ágústsdóttir
Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
- Ásgeir Trausti Einarsson
- Margrét Rán Magnúsdóttir
- Ylfa Þöll Ólafsdóttir (Dead Herring)
- Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
- Una Torfadóttir
Sígild og samtímatónlist
- Andri Björn Róbertsson
- Hildigunnur Einarsdóttir
- Dísella Lárusdóttir
- Oddur A. Jónsson
- Ólafur Kjartan Sigurðarson
Lög/tónverk ársins
Djasstónlist
- Another Time - ASA Trio + Jóel Pálsson, tónverk: Scott McLemore
- Milder's Mailbox - Baldvin Hlynsson, tónverk: Baldvin Hlynsson
- Prikó - ADHD, tónverk: ADHD
- Ray of Light - Haukur Gröndal, tónverk: Haukur Gröndal
- The Moon and the Sky - Marína Ósk, tónverk: Marína Ósk
Sígild og samtímatónlist
- Fasaskipti - Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, tónverk: Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, texti: Þórdís Helgadóttir
- FEAST - Daníel Bjarnason, tónverk: Daníel Bjarnason
- Gemæltan - Veronique Vaka, tónverk: Veronique Vaka
- Glerhjallar - Sveinn Lúðvík Björnsson, tónverk: Sveinn Lúðvík Björnsson
- Guðspjall Maríu (The Gospel of Mary) - Hugi Guðmundsson, tónverk: Hugi Guðmundsson, texti: Niels Brunse og Nila Parly
Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
- Vinir - Elín Hall. Lag: Elín Sif Halldórsdóttir, Reynir Snær Magnússon, texti: Elín Sif Halldórsdóttir
- Á óvart (ásamt Kött Grá Pjé & Urður) - Benni Hemm Hemm. Lag og texti: Benedikt Hermann Hermannsson, Atli Sigþórsson
- Rhodos - Ultraflex. Lag og texti: Katrín Helga Andrésdóttir og Kari Jahnsen
- Klisja - Emmsjé Gauti. Lag: Emmsjé Gauti og Þormóður Eiríksson, texti: Emmsjé Gauti
- Ungfrú Ísland - Kvikindi. Lag: Friðrik Margrétar Guðmundsson, Brynhildur Karlsdóttir, texti: Brynhildur Karlsdóttir
- Bleikur og blár - Friðrik Dór. Lag og texti: Friðrik Dór Jónsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson
- Snowblind - Ásgeir Trausti. Lag: Ásgeir Trausti Einarsson, texti: Ásgeir Trausti Einarsson, Pétur Ben
- Allt - russian.girls og Bngrboy. Lag: russian.girls & Bngrboy, texti: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
- Uppá rönd (ásamt GDRN) - Hjálmar. Lag: Sigurður Guðmundsson. Texti: Sigurður Guðmundsson og Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
- EF ÞEIR VILJA BEEF (ásamt Joey Christ) - Daniil. Lag og texti: Daníel Moroshkin og Jóhann Kristófer Stefánsson
Önnur tónlist
- the world is between us - Árný Margrét. Lag og texti: Árný Margrét
- We could stay - Ólafur Arnalds og Josin. Lag: Ólafur Arnalds & Josin, texti: Josin
- Haustdansinn - Mugison. Lag og texti: Mugison
- Runaway (ásamt RAKEL) - Lón. Lag og texti: Ásgeir Aðalsteinsson, Ómar Guðjónsson og Valdimar Guðmundsson)
-
Rome - Jelena Ćirić. Lag og texti: Jelena Ćirić
Hljómplata ársins
Sígild og samtímatónlist
- Fikta - Jónas Ásgeir Ásgeirsson
- Quanta - Einar Torfi Einarsson
- Two Sides - Barokkbandið Brák
- VÍDDIR - Bára Gísladóttir
- Windbells - Hugi Guðmundsson og Kammersveit Reykjavíkur
Kvikmynda- og leikhústónlist
- The Essex Serpent - Herdís Stefánsdóttir og Dustin O'Halloran
- Jaula - Snorri Hallgrímsson
- OWLS - Magnús Jóhann
- Surface - Ólafur Arnalds
- Un Monde Nouveau - Arnar Guðjónsson
Djasstónlist
- ADHD 8 - ADHD
- Aether - Iceland's Liberation Orchestra
- Another Time - ASA Trio + Jóel Pálsson
- Five angles - Haukur Gröndal
- One Evening in July - Marína Ósk
Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
- Ungfrú Ísland - Kvikindi
- Hvernig ertu? - Prins Póló
- Vök - Vök
- Dætur - Friðrik Dór
- 12:48 - gugusar
Önnur tónlist
- they only talk about the weather - Árný Margrét
- Fossora - Björk
- Tempó Prímó - Uppáhellingarnir
- While We Wait - RAKEL, Salóme Katrín & ZAAR
- Thankfully Distracted - LÓN
Upptökustjórn ársins
- Two sides - Barokkbandið Brák. Upptökustjórn: Ragnheiður Jónsdóttir
- More Than you Know - Silva Þórðardóttir & Steingrímur Teague. Upptökustjórn: Styrmir Hauksson, Ragna Kjartansdóttir, Steingrímur Teague & Silva Þórðardóttir
- Time is on my Hands - Ásgeir. Upptökustjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson & Ásgeir Trausti Einarsson
- Fossora - Björk. Upptökustjórn: Björk Guðmundsdóttir
- OWLS - Magnús Jóhann. Upptökustjórn: Magnús Jóhann Ragnarsson
Tónlistarviðburður ársins
- ErkiTíð 2022
- 30 ára afmælistónleikar Stórsveitar Reykjavíkur
- Moses Hightower & Prins Póló í Gamla Bíó
- Guðspjall Maríu
- Apparition
Tónlistarmyndband ársins
-
Drift - Daniel Wohl. Leikstjórn: Máni M. Sigfússon
- The world is between us - Árný Margrét. Leikstjórn: Erlendur Sveinsson
- Ósýnileg - Eliza Newman. Leikstjórn: Margrét SeemaTakyar
- Það vex eitt blóm fyrir vestan - Rún. Leikstjórn: Viktor Sigurjónsson
- Rome - Jelena Ćirić. Leikstjórn: Sigurlaug Gísladóttir
Plötuumslag ársins
Kemur síðar í sameiginlegri tilkynningu Íslensku tónlistarverðlaunanna og FÍT.