Fasteignauppbygging er óábyrg og ekki til þess fallin að þjóna þeim efnalitlu Vilhelm Jónsson skrifar 28. febrúar 2023 10:31 Enn og aftur er verkalýðsforustan farin að klifa á ódýrara húsnæðisverði í kjarasamningsviðræðum sem skiptimynd fyrir lágtekjufólk. Það mun væntanlega sem fyrr ekkert vanta upp á loforðaflauminn hjá stjórnvöldum að skrifa undir enn eina viljayfirlýsinguna sem er vart pappírsins virði. Til að hagkvæmt fasteignarverð verði til staðar þarf vitræn uppbygging að eiga sér stað ásamt fjármálaumhverfi þar sem ábyrgir aðilar véli með slíkar ákvarðanir en ekki stjórnmálamenn, sem geta vart stýrt sjálfum sér. Einnig þarf þjóðin að stöðva þá rányrkju sem bankar og aðrar lánastofnanir ástunda fyrir tilverknað óhæfra stjórnmálamanna. Það er löngu orðið tímabært að dregið sé úr óraunhæfum byggingakröfum og regluverki, ekki síst félagslegs húsnæðis, sem stenst alltof oft enga skoðun, og sá listi er langur. Eigi að nást að vinda ofan af húsnæðisúrræðum ætti hið opinbera ekki að koma nærri þeirri úrvinnslu eða skipa til þeirra verka. Það er ekki nóg að stjórnvöld viti að of hröð og sveiflukennd uppbygging skapar óstöðugleika ásamt skorti á vinnuafli, heldur þurfa þau að bregðast við vandanum. Það er óforsvaranlegt að byggingaréttur á venjulegu einbýlishúsi liggi í 50 milljónum, og vart byrjað á byggingunni. Það er líka galið og óheyrilega dýrt að húsbyggjendur skuli þurfa að þvera borgina úr vestri austur fyrir fjall upp í Bolöldur (hálfa leið í Hveragerði) eða Álsnes til að losa uppgröft fyrir húsagrunnum. Síðan skilur enginn neitt í neinu að götur borgarinnar séu undirlagðar af skít sem rennur frá vöruflutningabifreiðum í rigningatíð ásamt að ýta enn frekar undir umferðatafir, kolefnisójöfnuð og byggingakostnað. Iðnaðarmenn sem og aðrir byggingaaðilar geta skammtað sér nánast hvað laun sem er í skjóli þenslu. Það skiptir nánast engu hvar komið er niður, samfélagið er á villigötum og drifið áfram af lántökum, stjórnleysi og græðgi. Eigi að vera hægt að takast á við núverandi húsnæðisskort og byggingakostnað þarf hugarfarsbreyting að eiga sér stað og skynsemi að ráða för. Sé ekki hægt að ná vitrænu samkomulagi við borgina og nágrannasveitarfélög um hagfellt lóðarframboð til að kostnaðarauki fari síður úr böndunum væri eðlilegast að ríkið ásamt lífeyrissjóðum stæðu að sérstöku átaksverkefni fyrir t.d. þrjú til fimm þúsund manna hverfi. Slík byggð gæti jafnvel verið á jaðri borgarmarkanna. Eðlilegast væri að leita tímabundið út fyrir landsteinana að ódýrara vinnuafli til að slá á þensluhvetjandi vanda og snara upp húsnæði á einu til tveimur árum á sem hagkvæmasta hátt og undir eðlilegu eftirliti. Útsjónarsemi og góð útfærsla þarf ekki alltaf að vera kostnaðarsöm til að vel til takist, einnig þarf að tryggja að gettóhverfi skapist ekki. Vellukkuð hverfi víðsvegar um heiminn gætu verið fyrirmynd. En eigi að vera hægt að halda byggingakostnaði niðri er tímabært að byggingar og verkfræðistofur komi þar sem minnst nærri. Rekstur félagslegra leiguíbúða, samanber Bjarg og systurfélög sem rekin eru fyrir tilstuðlan verkalýðs- og stéttarfélaga, ásamt að hafa fengið niðurfellingu ríkis og sveitarfélaga, er vart annað en tálsýn. Að ætla sér að reyna að byggja ódýrt félagslegt húsnæði í bullandi þenslu stenst enga skoðun. Verkamannabústaðakerfið sáluga snerist fljótt upp í misnotkun til að stuðla að atvinnuuppbyggingu. Eflaust eru einhverjir sem telja rétt að endurvekja verkamannabústaðakerfið í upprunalegri mynd þótt sú sýn hafi brugðist endanlega með verðtryggingu lána 1979, og var lagt nokkrum árum síðar niður. Væntanlega getur fasteignarfélagið Bjarg skaffað eitthvað ódýrari félagslegar íbúðir sem eru niðurgreiddar með opinberu fé. Sé litið til allra þátta þá eru þessir fermetrar alltof dýrir þegar grannt er skoðað og oft á tíðum illa skipulagðar kytrur og fylgir þeim óraunhæfir búsetu- og lánaskilmálar. Eðlilega er fasteignarfélagið Bjarg ekki að gefa eitt eða neitt, og allra síst á uppgangstímum. Stjórnvöld og verkalýðsfélög hafa verið iðin við að stæra sig af framangreindri uppbyggingu, sem er fokdýr sé litið til allra þátta. Það er vart liðið nema á annað ár síðan félagið fékk lækkun á vöxtum þar sem uppbyggingin var ósjálfbær. Svokölluð hlutabótalán sem áttu að bjarga þeim efnaminni um kaup á ódýru félagslegu húsnæði voru og eru lítið annað en tálsýn til að slá ryki í augu verkalýðshreyfingarinnar og almennings. Lágtekjufólki á almennum markaði stendur sjaldnast slík fyrirgreiðsla til boða nema í besta falli þegar um ákveðnar nýbyggingar er að ræða og oft fylgja kvaðir sem standast enga skoðun þegar á reynir. Hugsanlega mætti í einstaka tilfellum með geðþóttaákvörðun HMS endurskoða verklagið utan borgarmarkanna. Það yrði HMS ekki til framdráttar ef verklag og áherslur stofnunar kæmu fram í dagsljósið og ekki síst varðandi hlutabótalánsloforð til þeirra efnaminni. Tilvitnun: umsækjanda var synjað um hlutabótalán á nýlegri þriggja herbergja íbúð þótt söluverð væri langt undir byggingakostnaði á þeim forsendum að það samræmdist ekki reglum HMS að lána til notaðra eigna. Það er löngu orðið tímabært að flett sé ofan af verklagi stofnunar og ekki síst eftir áratuga sorgarsögu og brotlendingar Íbúðalánasjóðs sem og verkamannabústaða. Notað eldra húsnæði þarf að vera valkostur hjá þeim efnaminni. Það er óumdeilanlegt að nýtt húsnæði er umtalsvert dýrara en notað og örugglega sé litið til fasteignaverðs á landsbyggðinni. Forustusauðir HMS þrákálfast við að skilja að notað húsnæði getur þjónað sumu lágtekjufólki mun betur og þarf að vera valmöguleiki. Það væri hægt að líkja verklaginu við að ríkið niðurgreiddi matarmiða til aðstoðar þeirra sem minnst mega sín með þeim kvöðum að miðarnir nýttust eingöngu í dýrustu matvörubúðinni. Ódýrt félagslegt húsnæði sem er byggt í bullandi þenslu stenst enga skoðun. Sú félagslega húsnæðisuppbygging sem hefur átt sér stað í gegnum fasteignafélagið Bjarg, fyrir tilstuðlan verkalýðshreyfingarinnar, er of dýr og vart annað en tálsýn. Starfsemin er drifin áfram af óskhyggju og ekki sjálfbær til lengri tíma litið hverjum hún eigi að þjóna. Uppbygging félagslegs kerfis á engu að síður fullan rétt á sér með hagkvæmum og ábyrgum hætti. Það er löngu tímabært að fleiri húsnæðisúrræði og valmöguleikar séu í boði fyrir þá efnaminni. Sveitarfélög þurfa að hætta að nýta sér ófarir þeirra sem minna mega sín til að viðhalda atvinnuskapandi uppbyggingu. Stjórnvöld og sveitarfélög ber að standa undir lögboðnum og félagslegum skyldum sínum, ekki síst gagnvart þeim sem eiga allt sitt undir að vel sé að verki staðið. Stjórnvöldum ber að stýra atvinnulífi með þeim hætti að eðlilegt jafnvægi og stöðugleiki ríki. Það er kominn tími til að kafað verði ofan í þá óstjórn sem þrífst í landinu sem stjórnvöld stæra sig af sem miklu hagvaxtaskeiði.Með samstilltu átaki má vinda ofan af áratugaóstjórn og rányrkju í boði stjórnvalda. Til slíkra verka þarf annað og meira en ríkisstjórn Íslands og handónýtan gjaldmiðil. Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar