Það var baráttuhugur í þeim um eða rúmlega þrjú hundruð sem mættu í Iðnó í dag til að sýna öðrum félögum sínum í Eflingu stuðning og meðtaka nýjustu skilaboðin frá forystu félagsins. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að ákvörðun Samtaka atvinnulífsins um allsherjar verkbann á félaga Eflingar hafi breytt áætlunum félagsins varðandi nýja og víðtæka lotu verkfalla sem hefjast átti á þriðjudag.

„Samninganefnd Eflingar hefur tekið ákvörðun um að af þeim verkföllum verði ekki í ljósi þeirrar ótrúlegu og brjálsemislegu ákvörðunar Samtaka atvinnulífsins að boða til verkbanns. Sem á þá að ná til allra félagsmanna Eflingar á höfuðborgarsvæðinu sem eru á almenna markaðnum,“ sagði Sólveig Anna í Iðnó í dag.
Verkbannið hefði meðal annars náð til þeirra sem hefðu farið í verkfall í næstu viku og vinnudeilusjóður Eflingar hefði greitt bætur. Sjóðurinn gæti hins vegar ekki staðið undir greiðslum til allra 21 þúsund félagsmanna Eflingar í verkbanni. Ekki væri þó útilokað að nýjar verkfallsaðgerðir verði boðaðar síðar. Yfirstandandi verkföll haldi hins vegar áfram.

„Okkar stærsta málefni núna er að sjá hvort ríkissáttasemjari kallar deiluaðila aftur að borðinu. Hvort hann leggur fram miðlunartillögu. Eða hvort þessi aðgerð Samtaka atvinnulífsins, sem augljóslega er sett fram í pólitískum tilgangi, knýr á um það sem samtökin vilja sökum getuleysis sem þau eru haldin til að gera kjarasamning við Eflingu, að stjórnvöld beiti sér með því að setja lög á þessa deilu,“ segir formaður Eflingar.
Efling hefði gert allt sem í valdi hennar og samninganefndar standi til að reyna að nákjarasamningi. Boltinn væri því hjá ríkissáttasemjara.
„Það er jafn ljóst að Samtök atvinnulífsins ætla sér ekki að setjast við kjarasamningsborðið og gera við okkur kjarasamning. Þannig að já, ég myndi segja að boltinn væri sannarlega þar.“
Þrír möguleikar í stöðunni
Sólveig Anna segir að í raun séu aðeins þrír möguleikar í stöðunni. Settur ríkissáttasemjari kalli SA að samningaborðinu, hann leggi fram nýja miðlunartillögu eða stjórnvöld setji lög á verkfallið.
Frá samstöðufundi í Iðnó hélt hersingin með mótmælaspjöld og köllum upp Austurstrætið að stjórnarráðshúsinu.
Eflingarfólk af ýmsum þjóðernum kallaði þar eftir því að stjórnvöld beittu sér í deilunni og forsætisráðherra kæmi út og ræddi viðeflingarfólk. Formaður Eflingar knúði dyra á forsætisráðuneytinu með áskorunum á ensku svo allir skildu en án árangurs.
„Komið út, ekki fela ykkur. Það er aumkunarvert að fela sig fyrir okkur. Það er skammarlegt. Verið fulltíða, fullvaxinn. Verið hughrökk og komið og hittið okkur núna,“ sagði formaður Eflingar við dyr stjórnarráðshússins undir hvatningum félagsmanna sinna.

Litríkur hópur mótmælenda dvaldi nokkra stund við stjórnarráðshúsið og kallaði hvatningarorð að stjórnvöldum. Eftir að mörg þeirra höfðu stillt sér upp við húsið til myndatöku hélt hópurinn hins vegar áfram göngu sinni, í þetta skipti í átt að Alþingishúsinu.
Sólveig Anna sagði stjórnvöld þurfa að viðurkenna að eflingarfólk væri ómissandi á höfuðborgarsvæðinu.
„Og viðurkenni að það er þeirra pólitíska ábyrgð að standa með okkur og setja kröfu, setja pressu, á Samtök atvinnulífsins að gera það sem samtökin eiga einfaldlega að gera. Sem er að gera eflingarsamning við Eflingarfólk,“ sagði formaðurinn á gönguför með öðrum mótmælendum.
Stjónvöld eigi að senda skýr skilaboð til SA um að þau afturkalli auðvirðulegt verkbann og stríðsyfirlýsingu gegn öllu Eflingarfólki. Samtök atvinnulífsins hafa hins vegar marg ítreakað að þau séu bundin af fyrri samningum við 80 prósent félaga á almennum markaði.
Hvað þarf að gerast til að brúa þetta bil?
„Það er bara mjög einfalt og þú spyrð mig að þessari spurningu. Ég hef sagt síðan við gengum út frá ríkissáttasemjara síðast, eftir að Samtök atvinnulífsins neituðu að gera við okkur kjarasamning, að allt sem við erum að biðja um rúmast innan ramma þess kostnaðar sem Samtök atvinnulífsins hafa notað þegar þau hafa gert kjarasamninga við önnur stéttarfélög.“

Kröfur Eflingar ættu ekki að hleypa öðrum kjarasamningum í uppnám. Samtök atvinnulífsins hafi hins vegar kosið að standa upp frá samningaborðinu síðast liðinn sunnudag. Lausn deilunnar væri í raun mjög einföld.
„Kannski er hún svo einföld að það er þess vegna sem fólk sér hana ekki eða skilur hana ekki. Hún er einfaldlega sú að Samtök atvinnulífsins geri það auðveldasta í stöðunni. Sem er að setjast niður með okkur og gera við okkur kjarasamning. Það getur tekið minna en einn dag. Ef viljinn er fyrir hendi getur tekið minna en einn dag að ganga frákjarasamningi við okkur.“
Þú metur það þannig?
„Já, ég met það þannig og það er sannleikurinn,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir þá komin að alþingishúsinu. Mótmælin héldu svo áfram þar án mikilla viðbragða þaðan þótt tveir þingmenn Pírata hafi komið út til að fylgjast með og hlusta á kröfurnar.
Samtök atvinnulífsins ítrekuðu síðan í dag að það væri ekki valkvætt hjá fyrirtækjum hvort þau sendu Eflingarfólk heim vegna verkbannsins.