Hljómsveitin var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 2017 af þeim Arnari Júlíussyni, Trausta Mar Sigurðarsyni, Mikael Magnússyni og Birgi Þór Bjarnasyni. Tónlistinni lýsa þeir sem blöndu af þrass-, dauða- og grúvmetali og á stefnuskrá sveitarinnar er að verða næst stærsta hljómsveit í heimi sem byrjar á „M“ en hljómsveitin Megadeath eigi titilinn „sú stærsta“ að þeirra mati.
Danni Dæmalausi, útvarpsmaður á X977 tók sveitina tali um lagið þeirra, Faster Burns the Fuse, sem fjallar um ástandið í heiminum undanfarin tvö ár. Textann segja þeir vera niðurdrepandi en lagið agressíft.
Merkúr gaf út plötuna Melancholia árið 2022
Útslitalög Sykurmolans eru í spilun á X977

Lögin sem komust í úrslit Sykurmolans eru í spilun á X977 út janúar, þau lög eru:
- Karma Brigade – Alive
- Winter Leaves – Feel
- Bucking Fastards – Don Coyote
- Beef – Góði hirðirinn
- Blankíflúr & Jerald Coop – Modular Heart
- Auður Linda – I´m Not The One
- Merkúr – Faster Burns The Fuse
- Sóðaskapur – Mamma ver
Í byrjun febrúar fer svo fram kosning, hér á Vísi, sem mun eiga þátt í því að ráða hvaða listafólk hlýtur hvorki meira né minna en 250.000 kr. í verðlaun.
Keppnin í ár er haldin í samstarfi við Orku náttúrunnar