Stærsti skjálfti við Herðubreið frá upphafi mælinga Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 23. október 2022 11:11 Hér sést glitta í Herðubreið, oft nefnd drottning íslenskra fjalla. Vísir/Vilhelm Stærsti skjálfti sem mælst hefur við Herðubreið reið yfir í gærkvöldi.
Um klukkan tíu í gærkvöldi hófst skjálftahrina og hafa þrír skjálftar mælst yfir þremur að stærð, sá stærsti mældist upp úr klukkan ellefu. Hann var 4,1 að stærð og fannst meðal annars á Akureyri. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir skjálfta við Herðubreið ekki óalgenga. „Það koma hrinur þarna reglulega en þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst með kerfinu sem við notum í dag, frá 1991. Næst stærsti skjálftinn mælist 1998 og var fjórir á stærð og örlítið minni en sá sem mældist í gærkvöldi,“ segir Lovísa í samtali við fréttastofu. Flekaskil liggja yfir landið á þessu svæði og því eru jarðskjálftar ekki óeðlilegir. Lovísa segir þetta ekki fyrirboða um eitthvað annað. „Herðubreið er talin hafa myndast í einu gosi og talið dautt eldfjall, það ætti ekki að gjósa þar aftur. Þetta eru ekki skjálftar vegna kvikuinnskots,“ segir Lovísa Talsverð eftirskjálftavirkni hefur mælst á svæðinu í nótt. Þannig hefur sjálfvirkt jarðskjálftakerfi Veðurstofunnar staðsett yfir 520 jarðskjálfta á svæðinu norðan við Herðubreið.
Vatnajökulsþjóðgarður Eldgos og jarðhræringar Vísindi Þingeyjarsveit Tengdar fréttir Nokkuð stór skjálfti við Herðubreið Jarðskjálfti að stærð 4,1 mældist við Herðubreið í gærkvöldi. Tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist á Akureyri. 23. október 2022 07:36 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Nokkuð stór skjálfti við Herðubreið Jarðskjálfti að stærð 4,1 mældist við Herðubreið í gærkvöldi. Tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist á Akureyri. 23. október 2022 07:36