Eitt flottasta leikfang sem er í boði Tinni Sveinsson skrifar 11. október 2022 07:01 Fagurblár Porsche Cayman á þjóðveginum. Vísir/James Bílaþættirnir Tork gaur hefja göngu sína á Vísi í dag. Í fyrsta þætti er sportbíllinn Porsche Cayman tekinn fyrir.
James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann segir Porsche Cayman vera algjört leikfang og eitt það flottasta sem er í boði. Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Tork gaur - Porsche Cayman Vélin fyrir miðju James er afskaplega hrifinn af bílnum og nefnir í því samhengi meðal annars legu vélarinnar sem er fyrir miðjum bíl. „Það getur verið erfitt að útskýra það fyrir þeim sem hafa ekki prófað þannig bíla en þyngdarpunkturinn er fyrir miðju á bílnum og það gefur skemmtilegan karakter. BMW-eigendur segja oft að einu bílarnir sem vert er að keyra séu afturhjóladrifnir og það er alveg rétt. Hinsvegar ef þeir eru afturhjóladrifnir og með vélina fyrir miðju, eins og þessi, þá erum við að tala saman.“ Porsche Cayman er mitt á milli Porsche Boxter og stóra bróður, Porsche 911, hvað verð og kraft varðar.Vísir/James Fallega blár Bíllinn sem James fékk lánaðan er fagurblár en hann segir áberandi liti fara sportbílum vel. „Ef maður ætlar að vera á áberandi sportbílum þá verða þeir að vera litríkir. Helst bláir eða neongrænir eða álíka. Um leið og ég sá þennan gullfallega bláa bíl stara í andlitið á mér þá vissi ég að það yrði gaman.“ Bíllinn er beinskiptur og segir James skemmtilegt að smella honum í gír og hendast áfram. „Þetta er ökumannsbíll. Þú ert tengdari bílnum þegar hann er ekki sjálfskiptur heldur beinskiptur. Það eru ekki margir takkar í mælaborðinu og ég vil ekki einu sinni kveikja á útvarpinu. Þetta er bíll sem maður vill njóta þess að keyra án þess að flækja málin.“
Tork gaur Tengdar fréttir Byrjaði að mynda bíla átta ára og lætur nú drauminn rætast „Minn bílaáhugi hefur alltaf verið undirliggjandi,“ segir James Einar Becker. Í næstu viku fer James af stað með nýja bílaþætti hér á Vísi. Á daginn vinnur hann sem markaðsstjóri en hann átti sér alltaf draum um að gera eigin bílaþátt. 9. október 2022 12:01 Mest lesið Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Erlent
Byrjaði að mynda bíla átta ára og lætur nú drauminn rætast „Minn bílaáhugi hefur alltaf verið undirliggjandi,“ segir James Einar Becker. Í næstu viku fer James af stað með nýja bílaþætti hér á Vísi. Á daginn vinnur hann sem markaðsstjóri en hann átti sér alltaf draum um að gera eigin bílaþátt. 9. október 2022 12:01