Rússar ekki í vandræðum með olíuútflutning þrátt fyrir þvinganir
![Xi Jinping, forseti Kína hefur síst staðið í vegi fyrir auknum innflutningi á rússneskri hráolíu. Þeir félagarnir, Xi og Putin, áttu fund á dögunum.](https://www.visir.is/i/A92C06FF7A84C2F97125ED606B679F6409D1C8F73521E9EDFA252282F017DD83_713x0.jpg)
Þrátt fyrir viðskiptaþvinganir Vesturlanda gagnvart Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu hefur rússneskum olíufyrirtækjum tekist að viðhalda nánast sömu framleiðslu og fyrir stríð. Útflutningur hráolíu mældur í magni er talinn munu dragast saman um sjö til átta prósent á þessu ári, að því er kemur fram í nýlegri greiningu Institute of Energy við Oxford-háskóla í Bretlandi (OIES).