Hinn 33 ára gamli Sommer var einn þeirra markvarða sem orðaður var við Manchester United í sumar. Hann virðist ekki hafa látið þá orðróma á sig fá og bauð upp á eina ótrúlegustu sýningu síðari ára er lið hans náði óvænt í stig gegn ógnarsterku liði Bayern.
| A perfect goalkeeping display!
— SofaScore (@SofaScoreINT) August 27, 2022
Yann Sommer v Bayern München:
19 saves (!!)
11 saved shots from inside the box
4 clearances
2 punches
1 high claim
74 touches
10 SofaScore rating
Most saves in a single match in our ENTIRE database! #FCBBMG pic.twitter.com/ajUHVGAtud
Heimamenn ógnuðu ekki mikið í fyrri hálfleik og reyndu aðallega skot af löngu færi. Það var hins vegar töluvert gegn gangi leiksins sem Marcus Thuram kom þeim yfir. Í síðari hálfleik þyngdist sókn Bæjara til muna.
Sadio Mané fékk gullið tækifæri til að jafna eftir rúma klukkustund og var í raun byrjaður að fagna áður en hann sá Sommer verja meistaralega með fótunum. Mané fylgdi eftir skoti sínu en aftur var Sommer vel á verði og varði aftur meistaralega.
Örskömmu síðar slapp Leroy Sané í gegnum vörn Gladbach en Sommer sá við honum. Sané reyndi svo hörkuskot af löngu færi en Sommer varði auðveldlega líkt og hann gerði í fyrri hálfleik er Bæjarar reyndu skot utan af velli.
Þegar tuttugu mínútur lifðu leiks átti Serge Gnabry skot út vítateignum sem Sommer sló í burtu, fimm mínútum síðar reyndi Benjamin Pavard skot af löngu færi sem Sommer varði frábærlega.
Sané braut loks ísinn á 83. mínútu og gerðu heimamenn allt sem þeir gátu til að vinna leikinn. Alphonso Davies átti þrumuskot að marki sem Sommer varði vel og miðvörðurinn Matthijs de Ligt fékk svo eflaust besta færið er hann negldi boltanum í átt að marki í upphafi uppbótartíma en Sommer var fljótur niður og varði enn og aftur.
Joshua Kimmich átti svo lokatilraunina en það var skot af löngu færi sem fór beint á markvörðinn kná. Alls varði hann 19 skot í leiknum en þau má öll sjá hér að neðan.
Yann Sommer broke the Bundesliga record for most saves in a match with 19 @bundesliga_EN pic.twitter.com/aJiL9kTtoq
— ESPN FC (@ESPNFC) August 27, 2022
Bayern er áfram á toppi deildarinnar með 10 stig að loknum fjórum umferðum. Union Berlín er í 2. sæti með jafn mörg stig á meðan Freiburg, Hoffenheim og Borussia Dortmund eru öll með níu stig. Þar á eftir kemur Gladbach með sín átta stig.