Ytri Rangá komin yfir 3.000 laxa Karl Lúðvíksson skrifar 29. ágúst 2022 08:57 Tveir laxar þreyttir á sama tíma í Djúpós í Ytri Rangá Ytri Rangá er efst á listanum yfir aflahæstu laxveiðiár landsins og er komin yfir 3.000 laxa en hún fer líklega nálægt 5.000 þetta árið.
Ástæðan fyrir því að tasla 5.000 er nefnd er einfaldlega sú að maðkurinn fer niður um mánaðarmótin og þá verða þessar tölur fljótar að hækka meira. Það má reikna með að fyrsta vikan í maðkveiði gefi 600-800 laxa miðað við magnið af laxi sem er í ánni. Sama er uppá teningnum í Eystri Rangá en fyrsta vikan þar í maðki gæti gefið svipaða tölu enda er nóg af laxi í báðum ánum. Ytri Rangá hefur gefið 3.021 lax það sem af er sumri og Eystri Rangá 2.368 laxa en veitt er í báðum ánum í tvo mánuði til viðbótar og haustið í þeim er oft ansi drjúgt. Norðurá er komin í 1.280 laxa sem er bara ágætt sumar þar á bæ: Þverá-Kjarrá er komin í 1.244 laxa og Miðfjarðará 1.113 laxa. Síðsumarið hefur verið mun betra en veiðimenn áttu von á í síðustu þremur ánum í þessari upptalningu. Vel flestar sjálfbæri árnar eru komnar eitthvað yfir veiðitölurnar í fyrra en í sviganum fyrir aftan má sjá töluna sem áin gaf í fyrra, þar má til dæmis nefna Selá með 892 (764 ), Laxá á Ásum 695 (600), Elliðaárnar 666 (617), Jökla 649 (540), Blanda 558 (418), Flókadalsá 422 (218) og Leirvogsá 356 (279). Listann í heild sinni má finna á www.angling.is
Stangveiði Mest lesið 23 laxar á land á Nessvæðinu í gær Veiði Ágæt veiði í Svarfaðadalsá Veiði Laxagöngur víða nokkuð góðar Veiði Myndband af stórlaxaveiði í Hrútu Veiði Langskeggur er málið Veiði 17 laxar fyrsta daginn við Urriðafoss Veiði 102 laxar á land á tveimur vöktum i Ytri Rangá Veiði Laxá í Dölum pökkuð af laxi Veiði Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní Veiði Þarf að bæta umgengni við vötnin Veiði