Smástirni starfar með Öldu Music Steinar Fjeldsted skrifar 28. ágúst 2022 11:10 Steinar Fjeldsted hjá Öldu Music og Smári Guðmundsson hjá Smástirni. Plötuútgáfan Smástirni hefur hafið samstarf við Alda Music. Smástirni var stofnað árið 2018 en útgáfan er í eigu tónlistarmannsins Smára Guðmundssonar. Smástirni hefur gefið út nokkrar plötur og má þar nefna nýjustu plötu Fríðu Dísar, Lipstick On. Aðrar netútgáfur sem vert er að nefna eru t.d. Rolf Hautbentner Band og Trilogia. Fríða Dís gaf nýverið út plötuna Lipstick on. Alda Music er stærsta plötuútgáfa landsins og hefur margt af okkar þekktasta tónlistarfólki á sínum snærum. Í upphafi þessa árs keypti tónlistarrisinn Universal Music Alda Music og tengslanetið því orðið enn stærra í sniðum. „Það er virkilega frábært að ganga til liðs við Alda Music og fá gott teymi á bakvið það sem ég er að gera hjá Smástirni. Það eru spennandi tímar framundan og margt á döfinni” segir Smári. Það er í nógu að snúast hjá Smára í Smástirni þessa dagana sem spilar einnig á gítar með Fríðu Dís en á döfinni hjá þeim eru meðal annars tvennir útgáfutónleikar Lipstick On, þeir fyrri í Hljómahöll þann 20. október og þeir seinni á Sirkus þann 22. október, ásamt vínyl útgáfu plötunnar. Punkturinn er ekki settur niður þar því Fríða Dís og Smári stefna á aðra stóra útgáfu í haust með plötunni Fall River. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun