Platan kemur út nú í haust, ber nafnið SKVALDUR og er fyrsta platan sem söngkonan sendir frá sér. Blaðamaður tók púlsinn á Kolbrúnu og fékk að heyra nánar um lagið, sem hún lýsir sem poppuðu gítarlag, fyllt með draumkenndum synthum og laglínum. UNDAN BERUM HIMNI var samið í svefnherbergi tónlistarkonunnar á sínum tíma en rataði svo með henni í Músíktilraunir í mars. Lagið hefur síðan þá verið í þróun og spilað á hinum ýmsu tónleikum.
KUSK hefur verið í tónlist í rúmt ár þar sem hún hefur prófað sig áfram í lagasmíðum og pródúseringu. Eftir sigurinn á Músíktilraunum 2022 hefur hún haldið áfram að koma fram og þá oftast með besta vini sínum og samstarfsmanni Óvita.
Spilað út fyrir landsteinana
„Þegar sumarið tók við af menntaskóla hafði ég ekki hugmynd um hvert tónlistin myndi taka mig. Ég er búin að fá svo ótrúlega mörg frábær tækifæri til þess að koma fram og unna tónlistinni. Til dæmis höfum við Óviti fengið að spila í Hljómskálagarðinum á 17. júní, á Innipúkanum um Verslunarmannahelgina og höfum jafnvel náð til útlanda þar sem við spiluðum á Westerpop í Hollandi í byrjun júlí,“ segir Kolbrún og bætir við: „Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið að fara út úr þægindarammanum eins mikið og ég hef gert þetta sumar og er svo sannarlega tilbúin í að fara gefa út alla þessa tónlist.“
Draumur að rætast
Rúsínan í pylsuendanum verður morgundagurinn að sögn Kolbrúnar.
„Einn stærsti draumurinn er þó eftir því á morgun fáum við Óviti að koma fram á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt.
Ef ég hefði getað sagt sjálfri mér á síðustu Menningarnótt 2019 að ég myndi standa á sviði þar sem mínar stærstu fyrirmyndir stóðu þá aðeins þrem árum seinna hefði ég hlegið að mér og sagt að mig væri að dreyma of stórt,“
segir Kolbrún að lokum.
Lagið er mixað af Kára Hrafn Guðmundssyni og masterað af Starra Snæ Valdimarssyni.