Spurst hefur að verið sé að vinna nýja útgáfu af KR-lagi Bubba Morthens. Er á engan hallað þó fullyrt sé að þar sé um að ræða eitt best heppnaða stuðningsmannalag sem um getur. Því þarf ekki að koma á óvart þó einarðir stuðningsmenn KR viðri áhyggjur sínar vegna endurgerðar lagsins „Við erum KR – allir sem einn)“.
Daníel Magnús Guðlaugsson er einn þeirra og hann vekur máls á þessu á Facebook-síðu sinni. „Upprunalega lagið fullkomið svo maður áttar sig ekki alveg á þessu,“ segir Daníel Magnús og er leynir hvergi því að honum er ekki um sel. Hann spyr hvernig þetta vildi til, hvort þetta væri samkvæmt vilja Bubba eða hvort KR hafi verið að biðja um þetta?
Áfram KR-stelpur og strákar, trans og hán
Stórt er spurt en Bubbi Morthens er fljótur til svars sem fyrr. Ekki er annað á rokkkóngi Íslands að heyra en að hann sé afar sáttur við þetta framtak. Hann segir breytta tíma.
„Við erum svört, við erum hvít. Nú hafa stelpurnar fengið sitt lag líka og stúkan. Sama lag nema nú syngur Selma Björns með og hópur barna úr yngstu flokkum í kórnum sem og leikmenn í meistara deild,“ segir Bubbi.
Hann segir lagið hafa fengið langþráða upplyftingu.
„Áfram KR-stelpur og strákar, trans og hán, lifi fjölbreytileikinn,“ segir Bubbi sem er eldheitur KR-ingur og vitnar í sinn eigin texta: Við erum svört og við erum hvít. Ekkert getur stöðvað oss. Og hann bætir því við að stelpurnar hafi alltaf átt að fá sitt lag: „Og ég sá ljósið.“
Eina alvöru stuðningsmannalagið
Lúðvík S. Georgsson er formaður KR og breytingarnar leggjast vel í hann. Lúðvík segir að lagið hafi verið tekið upp í breyttri mynd í gær og Bubbi hafi að mörgu leyti átt frumkvæði af því sjálfur.
„Hann vildi gera þetta tveggja kynja lag, ekki eins kynja lag,“
segir Lúðvík og telur enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu. Grunnurinn sé óbreyttur.
En er KR þá að PC-væðast?
„Ha, ég veit það ekki? Áttu við tölvur?“ segir Lúðvík sem var við laxveiðar þegar blaðamaður ræddi við hann.
Spurður hvenær til standi að kynna afurðina segist Lúðvík ekki vita það nákvæmlega, þetta verkefni sé ekki á hans höndum.

„En ef upptakan hefur heppnast er KR-dagur í næstu viku og það gæti verið vettvangur fyrir það,“ segir Lúðvík án ábyrgðar. En hann er ekki í vafa um gæði KR-lagsins.
„Þetta er besta stuðningsmannalag landsins, eina alvöru lagið. Þarf ekki að vera tengt fótbolta, þó það sé geirneglt sem slíkt, en gæti staðið sem popplag þar fyrir utan. Þegar Bubbi tekur sig til þá er von á góðu,“ segir Lúðvík.
KR-lagið bara fyrir kalla eða alla?
Hér neðar má sjá fyrri texta Bubba við stuðningsmannalag sitt og geta menn velt því fyrir sér merkingarfræðinni, hvort þarna sé aðeins verið að tala um karla eða hvort textinn geti átt við um alla KR-inga, hvernig svo sem þeir skilgreina sig, ef að er gáð? Ef marka má Bubba þá hafði hann aðeins karlmenn í huga þegar hann skrúfaði texta sinn saman en hugarfar höfundar þarf ekki nauðsynlega að breyta merkingu orðanna.
Allir sem einn
Við stöndum saman allir sem einn
uppgjöf þekkir enginn hér
Við erum harðir allir sem einn
öflug liðsheild sem fórnar sér.
Við erum KR – KR
og berum höfuð hátt
Við erum svartir, við erum hvítir
enginn getur stöðvað oss
Við eigum viljann, við eigum úthald
við eigum styrk á við hvaða foss.
Við erum KR – KR
og berum höfuð hátt
Mótlæti er til að sigrast á
sameinaðir við sigrum þá
Við þekkjum bæði gleði og tár
titillinn er okkar í ár.