Greville laug varðandi krabbameinsfrumurnar en ætlaði sér aldrei að verða ólétt eftir Giggs Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. ágúst 2022 07:31 Ryan Giggs gæti átt yfir höfði sér nokkurra ára fangelsisvist. Christopher Furlong/Getty Images Fjórði dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs fór fram í gær. Giggs, sem gerði garði frægan með Manchester United, er ásakaður um að beita fyrrverandi kærustu sína, Kate Greville, heimilisofbeldi yfir þriggja ára tímabil. Þá á hann að hafa ráðist á Emmu Greville, yngri systur Kate.
Hinn 48 ára gamli Giggs er einn sigursælasti leikmaður í sögu enskrar knattspyrnu og þó víðar væri leitað. Hann var hluti af gullaldarliði Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson og sneri svo að þjálfun eftir að ferlinum lauk. Day 4.The email Ryan Giggs' girlfriend sent him: 'You're a liar, a cheat, a narcissist, a manipulator. You're controlling. You re aggressive. You re violent. You're a disappointment. Giggs: 'Give the therapist a call, Kate.' https://t.co/MvYpwdyrtM— Daniel Taylor (@DTathletic) August 11, 2022 Hann var þjálfari Wales er hann var handtekinn í nóvember 2020 fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi, honum var sleppt gegn tryggingu skömmu síðar. Hann fór í leyfi sem þjálfari Wales en sagði loks af sér í júní á þessu ári þegar stutt var í að málið færi loks fyrir dómara. Málið hafði tafist vegna Covid-19. Talið er að réttarhöldin yfir Giggs gætu tekið allt að tíu daga. Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér fimm ára fangelsisvist. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu. Síðustu þrír dagar hafa ekki komið vel út fyrir Giggs þar sem hann hefur ásakaður um hina ýmsu hluti. Meðal annars að skalla Kate, henda henni nakinni út af hótelherbergi og ríghalda framhjá henni. Giggs hefur áður stundað ítrekað framhjáhald og hélt meðal annars við konu bróður síns eins og frægt er orðið. Það var aðeins annar tónn í réttarhöldunum í dag þar sem Kate Greville átti undir högg að sækja. Lögmaður Giggs spurði hana út í smáskilaboð sem hún sendi vinkonu sinni eftir að Greville hafði ákveðið að yfirgefa Giggs: „Ég ætla ekki að labba í burtu tómhent.“ Greville sagði að þetta hefði snúið að hundum sem þau áttu saman en Chris Daw, lögmaður Giggs, gaf til kynna að Kate hefði ætlað sér að verða ólétt og græða þannig fjárhagslega þar leikmaðurinn fyrrverandi er einkar vel stæður. Þá kom í ljós að Greville hafði logið að Giggs að krabbameinsfrumur hefðu fundist þegar hún fór í strokupróf. Viðurkenndi hún að það hefði verið „skelfileg“ blekking. Greville neitar hins vegar að hafa ætlað að græða á því að verða ólétt, og verða ólétt yfir höfuð: „Ég hefði ekki gert það því það er ekki það sem ég vildi.“ Greville sagði einnig að lygin varðandi krabbameinsfrumurnar hefði verið til þess að hún þyrfti ekki að sofa hjá Giggs. „Þetta var hræðilegt (af mér) og ég sé eftir þessu en þetta var eina liðin til að losna við hann af bakinu á mér.“ Chris Daw ásakaði Greville um að flytja inn með Giggs á meðan faraldrinum stóð því hann átti stórt hús með stórum garði. Greville sagði ástæðuna hafa verið þá að hún virkilega trúði því að þau gætu átt framtíð saman, þrátt fyrir allt ofbeldið. Ef hún hefði viljað vera í stóru húsi með stórum garði þá hefði hún heimsótt foreldra sína. Daw sagði einnig að ef Giggs hefði verið svo stjórnsamur og gert líf Greville jafn erfitt og hún hefur gefið til kynna þá hefði hún ekki flogið til Portúgals, Grikklands og Ibiza með vinum eða viðhaldið svo góðri vinnu, ekki farið svona oft út að borða eða út að skemmta sér. „Hann er bara eins og tvær ólíkar persónur. Hann dreifði skemmtilegheitunum yfir hryllinginn.“ Eftir að upp komst um framhjáhöld Giggs þá sendi Greville honum smáskilaboð og tölvupóst. Hann svaraði aðeins til að benda á stafsetningarvillu og sagði henni að hafa samband við sálfræðing. Greville var spurð út í grein sem birtist í götublaðinu The Sun í nóvember 2020. Þar var mynd af henni úti að ganga með hundinn sinn, var Greville með bólgna vör á myndinni. Var þetta fyrsta myndin sem náðist af henni eftir að Giggs var handtekinn. Í kjölfairið voru lesin upp smáskilaboð milli Greville og vinkonu hennar þar sem kom í ljós að planið var að græða 5000 pund á myndinni. Notaði hún fegrunarvörur til að ýkja bólgnu vörina. Greville sagðist aðeins hafa verið að reyna losna við ljósmyndarana sem voru fyrir utan heimili hennar öllum stundum. Hún hefði ekki einu sinni fengið borgað fyrir myndina. Að endingu var farið yfir „málið með uppþvottavélina.“ Giggs lítillækkaði Greville með því að segja að hún kynni ekki að setja í uppþvottavél. „Hann gerir það sama með börnin sín, segir þeim að þau séu að gera þetta vitlaust og raðar í vélina upp á nýtt. Hann var að þessu til að láta mig líta út fyrir að vera heimska.“ Réttarhöldin halda áfram í dag.
Fótbolti Enski boltinn Heimilisofbeldi Mál Ryan Giggs Tengdar fréttir Leið eins og þræl í sambandinu með Ryan Giggs Kate Greville, fyrrum kærasta Ryans Giggs, bar vitni í málinu gegn velsku knattspyrnugoðsögninni í réttarsalnum í Manchester í gær. 11. ágúst 2022 07:31 Ryan Giggs henti fyrrum kærustu sinni nakinni út á hótelgang Annar dagur af réttarhöldunum yfir Ryan Giggs var ekki mikið betri en sá fyrsti fyrir þennan sigursælasta leikmann í sögu Manchester United. 10. ágúst 2022 07:31 Ryan Giggs sagður vera með ljóta og illkvittna hlið Mál gegn Ryan Giggs, einum dáðasta leikmanni í sögu Manchester United, hófst í gær í Manchester Minshull Street Crown dómstólnum og var þessi fyrrum leikmaður og landsliðsþjálfari Wales mættur til að heyra framsögu saksóknara. 9. ágúst 2022 07:30 Ryan Giggs mætir aftur í réttarsalinn í dag Í dag hófust málaferli gegn leikjahæsta og sigursælasta leikmanninum í sögu Manchester United því Ryan Giggs er þar sóttur til saka fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni. 8. ágúst 2022 07:31 Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Sjá meira
Leið eins og þræl í sambandinu með Ryan Giggs Kate Greville, fyrrum kærasta Ryans Giggs, bar vitni í málinu gegn velsku knattspyrnugoðsögninni í réttarsalnum í Manchester í gær. 11. ágúst 2022 07:31
Ryan Giggs henti fyrrum kærustu sinni nakinni út á hótelgang Annar dagur af réttarhöldunum yfir Ryan Giggs var ekki mikið betri en sá fyrsti fyrir þennan sigursælasta leikmann í sögu Manchester United. 10. ágúst 2022 07:31
Ryan Giggs sagður vera með ljóta og illkvittna hlið Mál gegn Ryan Giggs, einum dáðasta leikmanni í sögu Manchester United, hófst í gær í Manchester Minshull Street Crown dómstólnum og var þessi fyrrum leikmaður og landsliðsþjálfari Wales mættur til að heyra framsögu saksóknara. 9. ágúst 2022 07:30
Ryan Giggs mætir aftur í réttarsalinn í dag Í dag hófust málaferli gegn leikjahæsta og sigursælasta leikmanninum í sögu Manchester United því Ryan Giggs er þar sóttur til saka fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni. 8. ágúst 2022 07:31