Spila í brúðkaupum þar sem brúðhjónin hafa kynnst á Tjarnarsviðinu undir tónum hljómsveitarinnar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. júlí 2022 11:31 Hljómsveitin Brimnes kemur fram á Þjóðhátíð í ár en hljómsveitameðlimir spiluðu fyrst á hátíðinni árið 2003. Aðsend Hljómsveitin Brimnes er þaulvön að koma fram og skemmta fólki en hún spilaði á sinni fyrstu Þjóðhátíð fyrir 19 árum síðan. Allir meðlimir sveitarinnar eru fæddir og uppaldir í Eyjum og segja ekkert í heiminum jafnast á við Þjóðhátíð. Þá er í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá þeim að sjá fólk verða ástfangið þegar það dansar saman við þeirra tóna.
Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð. Hvenær fóruð þið fyrst á Þjóðhátíð? Við spiluðum fyrst á Þjóðhátíð árið 2003 á Tjarnarsviðinu sem aukahljómsveit þar og vorum svo á dagskránni árið eftir. Þá hét hljómsveitin Tríkot. Höfum verið á Tjarnarsviðinu síðan en skiptum um nafn 2013 og heitum nú Brimnes. Við fögnum því 20 ára Þjóðhátíðarafmæli á næsta ári. Hvað okkur meðlimina varðar þá fórum við líklega allir á fyrstu Þjóðhátíðina okkar á fyrsta aldursárinu, enda allir fæddir og uppaldir í Eyjum. Hvað finnst ykkur skemmtilegast við þessa hátíð? Það skemmtilegasta við hátíðina er svo margt. Við elskum Þjóðhátíð og vitum að engin hátíð getur nokkurn tíma komist með tærnar þar sem hún hefur hælana hvað varðar skemmtilegheit og uppfyllingu eftirvæntingar. Í okkar tilfelli er hátíðin tvíþætt. Annar hluti hátíðarinnar er framkoma okkar, þar sem við gerum það sem okkur finnst skemmtilegast að gera sem hljómsveit. Svo þegar því lýkur, þá erum við með fjölskyldu og vinum að upplifa enn eina alsæluna. Biðin eftir næstu hátíð hefst á mánudeginum eftir Þjóðhátíð og eftirvæntingin vex með degi hverjum. Það er bara ekkert í heiminum sem jafnast á við Þjóðhátíð og síðasta Þjóðhátíð er alltaf sú besta Það sem okkur finnst hins vegar skemmtilegast er að fá fyrirspurnir um að spila í brúðkaupum þar sem brúðhjónin hafa kynnst á Tjarnarsviðinu undir tónum okkar. Óvísindaleg könnun okkar hefur leitt í ljós að þessi hjónabönd eru talsvert hamingjuríkari en gerist almennt og þau endast ævina út. Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þið stígið á svið? Hátíðargestir meiga búast við því sama frá okkur og undanfarin 19 ár. Það verður ósvikin Þjóðhátíðarstemmning á Tjarnarsviðinu og dúndrandi fjör. Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið ykkar? Það er erfitt að gera upp á milli Þjóðhátíðarlaganna. Sennilega er lagið „Ég veit þú kemur“ í mestu uppáhaldi, þó svo að önnur þjóðhátíðarlög séu líklegri til að rífa upp stemmninguna á pallinum. Ætli lag Bjartmars og Jóns Ólafssonar „Í brekkunni“ sé ekki það Þjóðhátíðarlag sem við spilum hvað oftast, okkur finnst það ansi gott. Hvernig ætlið þið að undirbúa ykkur fyrir stóru stundina? Undirbúningur hefur staðið yfir frá því á mánudegi eftir þjóðhátíð 2019, þetta er allengsta undirbúningstímabil sem við höfum tekið. Það er engin heilög rútína þannig sem er í gangi. Við hittumst samt alltaf fyrir Þjóðhátíð og tökum eina extra æfingu fyrir giggið og komum okkur í gírinn. Svo er það ófrávíkjanleg regla að við hefjum leik á Mannakornsslagaranum „Garún“.
Tónlist Þjóðhátíð í Eyjum Tengdar fréttir Verður eiginlega alltaf stressaður áður en hann stígur á svið Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti er í hópi þess listafólks sem kemur fram á Þjóðhátíð í ár. Hann fór fyrst á hátíðina fyrir átta árum síðan og segist ætla að leggja allt í atriðið sitt í ár. 11. júlí 2022 12:32 Mest lesið Hringdi í mömmu sem sagði einfaldlega: „Nói, nú kemur þú heim“ Áskorun Óraunverulegt að kaupa íbúð í miðborg London Lífið Sat uppi með útgáfu af sjálfri sér sem hún kunni ekki við Lífið Krakkatían: Bannað að hlæja, Friðarsúlan og Iceguys Lífið Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Tónlist Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Fréttatía vikunnar: Play, fiskbúðingur og stjörnuskilnaður Lífið Fleiri fréttir Sama hvað öllum finnst, nema mömmu og pabba Íslenskar stjörnur heiðra Bítlana Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Djúpt snortinn yfir viðbrögðum samfélagsins Hneig niður í miðju lagi Joy Orbison treður upp í Austurbæjarbíói Samdi lag um ást sína á RIFF Söguleg rappveisla í Laugardalnum Laufey treður upp með Justin Bieber Árný Margrét ómaði á tískupöllum í New York Írar sniðganga Eurovision taki Ísrael þátt „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Sjá meira
Verður eiginlega alltaf stressaður áður en hann stígur á svið Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti er í hópi þess listafólks sem kemur fram á Þjóðhátíð í ár. Hann fór fyrst á hátíðina fyrir átta árum síðan og segist ætla að leggja allt í atriðið sitt í ár. 11. júlí 2022 12:32