Kanye West hannar nýjar umbúðir fyrir McDonalds Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 28. júní 2022 16:20 Mikil leynd virðist hvíla yfir nýju samstarfi tónlistarmannsins Kanye West og skyndibitakeðjunnar McDonalds. Samsett mynd Tónlistarmaðurinn Kanye West, hefur í samstarfi við hönnuðinn Naoto Fukasawa, endurhannað umbúðir fyrir skyndibitakeðjuna McDonalds.
Tilkynnti samstarfið á Instagram og eyddi svo færslunni Hönnunarveftímaritið Dezeen greindi frá samstarfinu í síðustu viku en Kanye, nú kallaður Ye, birti mynd af umbúðunum á Instagram síðu sinni með skilaboðunum, „next week it's the fries“ sem er texti úr lagi hans Gold Digger. Færslunni eyddi hann að sjálfsögðu svo stuttu síðar eins og virðist vera stíllinn hans núna á Instagram. Vill færa út kvíarnar Samkvæmt Naoto Fukasawa segir hann Ye fyrst hafa nálgast sig árið 2020 til að lýsa yfir áhuga sínum að stíga inn í heim vöruhönnunar en tónlistarmaðurinn hannar í dag föt og skó fyrir tískumerkið sitt Yeeze. „Hann bað mig einnig um að hanna með sér kaffihús og bari þar sem fólk gæti sest niður, borðað og drukkið svo að það er greinilegt að sjá að hann vill reyna fyrir sér í veitingaheiminum.“ Engin opinber yfirlýsing hefur komið frá McDonalds sem staðfestir þó samstarfið í samtali við Dezeen en mikil leynd virðist því hvíla yfir því hvort og hvenær nýju umbúðirnar munu líta dagsins ljós.
Tíska og hönnun Veitingastaðir Hamborgarar Tónlist Matur Mest lesið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tíska og hönnun Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Fleiri fréttir Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira