Óðagot fyrrum umhverfisráðherra Ágústa Ágústsdóttir skrifar 13. maí 2022 15:11 Stækkun VJÞ í skjóli veikra, óljósra laga Í tíð fyrrum umhverfisráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar reið yfir landið slík flóðbylgja friðuna, að annað eins hefur varla sést. Kirsuberið á öldutoppinum átti að vera hinn alræmdi hálendisþjóðgarður. Allt var þetta byggt á grunni meingallaðra laga Vatnajökulsþjóðgarðs sem samþykkt voru árið 2007. Þegar sýnt var að ráherra myndi líklega ekki takast að koma kirsuberi sínu á toppinn, þrátt fyrir ærinn tilkostnað, fallegar ræður og loforð um betri heim fyrir alla var eina ráðið að koma eins miklu undir friðunarhattinn og mögulegt væri áður en skila þyrfti valdalyklinum. Friðun Austurafréttar Bárðardals og stækkun VJÞ í miklu óðagoti 30. ágúst 2021 voru örfáir útvaldir bændur í Bárðardal boðaðir með símtali á svokallaðan kynningarfund þar sem sveitarstjórn Þingeyjarsveitar kynntu áform um töku þjóðlenda í afréttinum undir stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs. Fullyrt var að málið væri að frumkvæði sveitarstjórnar, ekki væri um beiðni ráðherra eða ráðuneytis að ræða. Í lok apríl 2022 svara þeir þó á eftirfarandi hátt: “Því var það í samræmi við fyrri aðgerðir sveitarstjórnar að taka jákvætt, þann 24.júní 2021, í hugmyndir um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs þegar eftir því var leitað” Að sögn íbúa er sátu fundinn, nefndu sveitarstjórnarmenn aldrei náttúruvernd sem hluta ástæðu stækkunar. Mikil óánægja hefur verið meðal íbúa á svæðinu vegna hraða vinnuferilsins sem var án alls samráðs þrátt fyrir gefin loforð um annað. Eingöngu virðist hafa verið horft til óljósra loforða um fjármagn, uppbyggingu vega með bundnu slitlagi o.fl.. Þá er einnig áhugavert að sjá í fundargerðum að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs sá sérstaka ástæðu á 161. fundi 16.8.2021 til að gera athugasemdir og leggja áherslu á “að vandað sé til verka og sem mestar upplýsingar liggi fyrir áður en ákvarðanir eru teknar”. Á 162. fundi 13.9.2021 bendir stjórn sérstaklega á “mikilvægi samráðs”. Einnig bókar fulltrúi SAMÚT (Samtök útivistafélaga) “vinnubrögð við þessar stækkanir eru gagnrýniverðar hvað varðar hraðann sem gerir stjórn og svæðisráðum erfitt fyrir með eðlilega umfjöllun”. Í ljósi þessara athugasemda stjórnar, má lesa út úr að hún sé ekki alls kostar sátt við vinnubrögð ráðherra. Hann velur að hunsa þær og tíu dögum síðar, 23. september 2021 á bak við luktar dyr, skrifar fyrrum umhverfisráðherra undir breytingar á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð sem kveður á um stækkun á norðursvæði hans, alls 299 km2. 19. september hafði ætlunin verið að staðfesta stækkunina með undirritun ráðherra við hátíðlega athöfn nálægt Svartárkoti og hafði stjórn VJÞ verið boðið. Tveim dögum fyrr og án skýringa var þessum viðburði frestað. Fiskurinn undir steininum Í 1. grein laga um Vatnajökulsþjóðgarð segir: “Landsvæði í Vatnajökulsþjóðgarði getur verið í eigu íslenska ríkisins eða í eigu annarra aðila enda liggi fyrir samþykki eiganda viðkomandi lands um að það verði hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Leita skal samþykkis viðkomandi sveitarstjórnar fyrir friðlýsingu landsvæðis í sveitarfélaginu”. Í þessi lög vísa bæði fyrrum sveitarstjórn og fyrrum ráðherra vegna stækkunarinnar. Þessi lög stangast þó stórlega á við 20. grein sömu laga er segja: “Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skal í samráði við svæðisráð og Umhverfisstofnun gera tillögu til ráðherra um reglugerð fyrir þjóðgarðinn. Drög að reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð skulu kynnt sveitarstjórnum á svæðinu, landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum og þeim gefinn kostur á að gera athugasemdir við þau. Leita skal álits Náttúrufræðistofnunar Íslands á vistfræðilegu þoli þeirra svæða þar sem ætlunin er að veiðar og búfjárbeit verði heimil. Við setningu reglugerðarinnar skal við það miðað að landnýting innan þjóðgarðsins sé sjálfbær að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands”. Því má bæta við að mörk þjóðgarðsins eru sett með þessari sömu reglugerð. Færa má þá rök fyrir því þegar ráðherra beitir 1. grein við friðlýsingu og setningu reglugerðar, að hann skauti framhjá 20. gr. laga, sem er eini lagatextinn um mörk þjóðgarðsins og því nokkuð skýr lína um hvernig standa skuli að setningu reglugerða. Hver er þá tilgangur 20. greinar ef ekki þarf að horfa til hennar við stækkun og útvíkkun þjóðgarðsins ? Að mínu mati er þetta svo veik lagastoð sem stækkunin er byggð á, að ávallt mun ríkja vafi um lögmæti stjórnunar- og verndaráætlunar. Með langvarandi afleiðingum og deilum. Þessi lög um stækkun þjóðgarðsins eru með öllu órökrétt þar sem ákvörðun um friðun og stækkun kemur fyrst, en friðlýsingarskilmálarnir koma svo eftir á með stjórnunar- og verndaráætlun (skjóta fyrst, spyrja svo). Þá má benda á að í verkefnislýsingu fyrir tillögu að breytingum á stjórnunar- og verndaráætlun er ekki gert ráð fyrir gagnaöflun grunngagna, samráði við NÍ, UST og hagsmunaaðila fyrr en í þriðja þætti vinnuferilsins. Gott dæmi um þessi vinnubrögð eru svör þjóðgarðsvarðar Norðursvæðis á íbúafundi þann 30.4.2022 (rúmum 7 mánuðum eftir friðlýsingu) við spurningunni. “Hver er ástæða VJÞ að friða þetta svæði og hver er sýn ykkar á að þess þurfi ? Svar: “Það er einmitt verið að finna út úr því með þessari vinnu”. Þannig er lítið mál fyrir æðstu stjórnendur þjóðgarðs að lofa fögru fyrirfram (t.d. áframhaldandi nytjum eins og veiði, búfjárbeit og opnum vegslóðum) en breyta svo eftir að ný reglugerð hefur verið undirrituð af ráðherra og svæði friðað. Um þetta eru mörg dæmi. Þá er vert m.t.t. almannahagsmuna að upplýsa um skrif þjóðgarðsvarðar í Vatnajökulsþjóðgarði í öðru máli: “Ef ég væri einn í heiminum, með Náttúruverndarlögin og þjóðgarðsskilgreiningar IUCN myndi ég ekki hika við að loka báðum leiðum. Á hinn bóginn er til mikils að vinna að bæta samkomulag við f4x4 svo almenningsálitið snúist betur á sveif með þjóðgarðinum. Líklega væri best að samþykkja þessar tillögur sem bráðabirgðafyrirkomulag sem verði endurskoðað eftir nokkur ár þegar þjóðgarðurinn hefur fest sig betur í sessi”. Með öðrum orðum er verið að segja “Segjum já og brosum til að sýna þjóðinni góðu hliðina en þegar tíminn hefur aðeins liðið þá getum við tekið þetta allt til baka”. Þá er fyrirkomulag laga um Vatnajökulsþjóðgarð í engu samræmi við Náttúruverndarlög, sem ganga út á að friðlýsingarskilmálar liggi fyrir og hafi verið kynntir áður en ákvörðun er tekin um að ný svæði séu friðlýst. Þessi staðreynd sýnir að Vatnajökulsþjóðgarður er eins og oft hefur verið bent á, ríki innan ríkisins. Náttúruverndarlög ættu að vera meginregla friðlýsingar. Þau ásamt náttúruverndaráætlun Alþingis fela í sér forgangsröðun og hagsmunamat, bæði faglegt mat á þeim svæðum sem skulu friðlýst með tilliti til annarrar landnýtingar og að fjármunir málaflokksins nýtist vegna mikilvægustu svæða landsins. Við friðlýsingu samkvæmt Náttúruverndarlögum eru friðlýsingarskilmálar kynntir fyrirfram. Ráðherra fer með framkvæmdavald, dómara- og úrskurðarvald í sínum eigin málum. Í 19. grein laga VJÞ segir: “Ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga þessara eru kæranlegar til ráðherra. Úrskurður ráðherra er endanlegur úrskurður á stjórnsýslustigi”. Þetta þýðir að umrædd reglugerð ráðherra er ill kæranleg innan stjórnsýslunnar. Kostirnir væru þá annað hvort kvörtun til umboðsmanns Alþingis eða dómstólaleiðin. En þá gilda hins vegar almennar reglur að aðilar eigi beinna lögvarðra hagsmuna að gæta. Þá er málið í raun verst þeim sem talað hafa fyrir hálendisþjóðgarði og kynnt að hann muni í grunninn verða lýðræðislegur með aðkomu sveitarfélaga, hagsmunaaðila o.fl.. Aðferðir við stækkun VJÞ nú sýna, að þegar hentar, getur ráðherra fullnýtt vald sitt sem sækja má með óljósum og mistúlkanlegum lögum og skautað milli þeirra eins og sannur keppnismaður án þess að þurfa hafa áhyggjur tapi. Að þessu öllu sögðu tel ég nauðsynlegt að afturkalla þennan gjörning og taka lög Vatnajökulsþjóðgarðs til gagngerrar endurskoðunar. Ef vilji verður fyrir hendi mætti endurtaka hann síðar á þann hátt að ekki leiki vafi á lögmæti stækkunarinnar. Höfundur er Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, ásamt hagaðilum á Norðurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágústa Ágústsdóttir Skoðun: Kosningar 2022 Umhverfismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vatnajökulsþjóðgarður Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar Skoðun „Hrútskýring“ á fiskveiðióstjórn Íslands Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar Skoðun Málverkið tilbúið, en hver hélt á penslinum? Halla Björk Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Síðasti sjéns að mótmæla varðhaldi saklausra barna Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann Skoðun