Bræðslan fer fram í 17. skiptið á Borgarfirði eystra laugardaginn 23. júlí. Sem fyrr fer skemmtunin fram í gömlu síldarbræðslunni sem Borgfirðingar breyta í tónleikahöll eitt kvöld ár hvert. Auk sjálfra Bræðslutónleikanna hefur skapast mikil hefð fyrir tónleikahaldi í öðrum samkomuhúsum í vikunni fyrir Bræðslu. Aðdáendur lifandi tónlistar fá því nóg fyrir sinn snúð á Borgarfirði flestar helgar í sumar.
Listafólkið sem fram kemur á Bræðslutónleikum sumarsins er að vanda fjölbreyttur hópur, enda markmið hátíðarhaldara að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi, en helsta einkennismerki hátíðarinnar er sá fjölskylduandi sem þar ríkir.
Ung og efnileg söngkona, Malen Áskelsdóttir mun verða fyrst á svið þetta árið og þá stíga þar á stokk hin frábæra hljómsveit Flott sem hlaut nýverið íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta lag síðasta árs, auk þess að vera valin þar bjartasta vonin.

Reynsluboltarnir og Bræðsluvinirnir Mugison og KK munu koma fram saman og stórsveitin og aldamótabandið Írafár treður upp með Birgittu Haukdal fremsta í flokki. Það er svo Bræðslunni sérstakur heiður að bjóða þetta árið upp á eina af stærstu og vinsælustu hjómsveitum landsins – þjóðlagaþungarokksbandið Skálmöld.
„Borgarfjörður eystra hefur eflst gríðarlega sem áfangastaður fyrir ferðafólk á síðustu árum og gestir Bræðslunnar ættu að kanna hvað er í boði þar inn á vefnum borgarfjordureystri.is. Þar má fræðast um framboð gistingar, veitingastaða og afþreyingar, en göngusvæðið í kringum Borgarfjörð er einstakt og upplagt að tengja ferðalag þangað við heimsókn í Bræðsluna. Önnur dagskrá í firðinum í sumar og þá sérstaklega í aðdraganda Bræðslu verður svo kynnt sérstaklega þegar nær dregur, en miðasala á þá viðburði fer fram síðar,“ segir í tilkynningu.
Miðasala fer fram á vefsíðu hátíðarinnar braedslan.is.