Meiðslalisti United lengist fyrir leikinn við Chelsea Sindri Sverrisson skrifar 27. apríl 2022 16:01 Fyrirliðinn Harry Maguire verður ekki með Manchester United annað kvöld. Getty/Charlotte Wilson Harry Maguire og Jadon Sancho missa báðir af leik Manchester United gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta annað kvöld.
Maguire er meiddur í hné og Sancho er veikur. Auk þeirra eru Paul Pogba, Fred, Edinson Cavani og Luke Shaw frá keppni vegna meiðsla. Þetta staðfesti Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri United, á blaðamannafundi í dag og viðurkenndi að hann gæti þurft að láta unga og óreynda leikmenn spila gegn Evrópumeisturunum: „Það er mögulegt. Það vantar nokkuð marga leikmenn og enn eru 1-2 spurningmerki varðandi morgundaginn, til að mynda varðandi það hvort Aaron Wan-Bissaka geti spilað,“ sagði Rangnick. „Ég er þegar búinn að leyfa Hannibal að spila gegn Liverpool svo það er mögulegt [að ungir leikmenn fái að spila] en við verðum að vera sanngjarnir gagnvart þeim leikmönnum. Það þarf að velja réttu augnablikin og þeir verða að fá tækifæri til að standa sig vel í stað þess að þeim sé bara ýtt út í leikinn. Það þarf að velja rétta tímann,“ sagði Rangnick. United á fjóra leiki eftir í deildinni en möguleikinn á sæti í Meistaradeild Evrópu er svo gott sem úr sögunni eftir tapið gegn Arsenal í síðasta leik. United er í 6. sæti með 54 stig, sex stigum á eftir Arsenal sem er í 4. sæti og á leik til góða.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira