Af hverju X við K? Ásgeir Ólafsson Lie skrifar 27. apríl 2022 07:30 Grettir: Jón , ég er svangur.Jón: Grettir þú varst að borða.Grettir: Jón, mér leiðist!Jón: Grettir, finndu þer eitthvað geraGrettir: Ég ætla út að dunda mér.Jón: Ok en mundu að koma inn fyrir klukkan 24.Grettir: ok. Hverjir muna ekki eftir strípunum um Jón og Gretti? Frábært tvíeyki þar á ferð. Það hlýtur að segjast að ALLIR sem sitja nú í bæjarstjórn hafa lesið strípurnar um Jón og Gretti eða séð teiknimyndina. Mögulega haft hana með sér sem rök þegar ákvörðunin var tekin. Vegna þess að nýju reglurnar sem bornar hafa verið til ykkar, já bornar til ykkar kjósenda. Þið þurfið ekki að samþykkja þær. Ákvörðunin að banna lausagöngu katta frá miðnætti til klukkan 7 undir morgunn hlýtur að vera tekin af fólki sem heldur í alvöru að kettir geti tjáð sig eins og Grettir gerir. En staðreyndin er ekki sú. Sagan um Gretti og Jón er teiknimyndasaga. Mér finnst skrítið að þurfa að taka það fram. Þegar ég tala um fullorðið fólk. Oddviti miðflokksins sagði í oddvitaspjalli á RÚV fyrir nokkrum dögum að þetta kattamál verði úr sögunni á næsta eða þarnæsta fundi, og að það þurfi ekkert að tala um það frekar. Sá fundur hefur nú verið haldinn og þetta mál er alls ekkert úr sögunni. Og það þarf að tala um það frekar vegna þess að málið hefur undið upp á sig allverulega. Einnig ætla þau að flýta þessu um tvö ár. Nú 1. janúar 2023 en ekki 1 janúar 2025 eins og samþykkt var fyrst. Þannig að þið kattaeigendur hafið nú nokkra mánuði að kenna köttum ykkar nýjar útivistarreglur og á klukkur og kenna þeim að svara nafni sínu þegar kallað er á þá. Nú viljum við ítreka fyrir kjósendur sem þetta lesa að við ætlum að fella þetta. En til þess að geta það þurfum við ykkar atkvæði. Takið eftir. ALLIR fulltrúar í bæjarstjórn hafa nú samþykkt þetta. Sem segir okkur að við þurfum að fella heila bæjarstjórn. Til þess þarf mörg atkvæði til. Við minnum á að þetta hefur tekist áður hér í bæ. Það þarf ekki að fara mörg ár aftur því til upprifjunar. Kæri kjósandi. Ef engu er breytt þann 14. maí nk, og þú mögulega kýst flokk vegna gamallar hefðar þá þarft þú kjósandi góður að hafa áhyggjur af kettinum þínum. Þurfa mögulega að sækja köttinn þinn á stöðina eftir miðnætti og það sem verra er, að reyna útskýra og róa niður smábörnin á heimilinu sem ekki geta sofnað af því að að heimiliskötturinn er ekki kominn heim og klukkan að slá í miðnætti og enginn veit hvað gerist. Hvað verður um kettina? Hver fær leyfi að sækja þá? Ef þeir eru í garðinum hjá nágrannanaum? Má hann grípa til sinna ráða og gera að sem hann vill? Verða hafblá ljós sveimandi um allan bæ á nóttunni? Tekur lögreglan þetta að sér? Ætla þessir aðilar að ráða kattarnæturverði? Hvað gerist ef kisa er ekki búin að skila sér heim? Það kemur hvergi fram hjá þeim hvað gerist. Hvað verðum um kisurnar tvær sem búa i lystigarðinum og eru á annarri hverri mynd með krökkunum sem garðinn sækja og eru orðnir góðvinir garðins? Hver á að kalla þá inn? Og hvert á að kalla þá? Bæjarstjórn Akureyrar. Og því miður allir ellefu talsins að þessu sinni. Við höfum trú á fjórum áður. Hvað sjáið þið fyrir ykkur að það taki langan tíma að drepa allt kattarlíf á Akureyri. 4 ár? 8 ár? 12 ár? Við getum ekki túlkað þetta öðruvísi en grimmilega aðgerð hjá vanhæfri bæjarstjórn til að útrýma köttum á Akureyri. Fá fjölskyldur til að hugsa sig tvisvar um þegar verið er að velja nýja heimilisdýrið. Við sjáum ekki annað en að bæjarstjórnin vilji hafa fjölskyldubæinn Akureyri kattalausan innan fárra ára. Því spyr ég aftur. Ætlum við að leyfa þetta bara kæri kjósandi? Það þarf að grípa til vopna. ÞÚ ert með vopnið. Þetta kattarmál er eitt mál af mörgum sem tæklað er eins af núverandi bæjarstjórn. Þessi vinnubrögð hjá bæjarstjórninni eru ekki til að hreykja sér af. Enginn í bæjarstjórninni hefur dug eða hug í að standa upp og segja NEI! Allir eru nú sammála. Prófum þetta maður! Engin andmæli. Helber meðvirkni og kettirnir deyja. Fjölskyldubærinn Akureyri rær á ný mið með nafn sitt. Mun heita Akureyri – þar sem kettir eru ekki velkomnir hjá utanbæjarfólki. Við verðum skotspónn athlægi. Ekki ef við fáum ykkur með okkur. Akureyri. Verum huguð. Þorum að breyta og stoppa þennan farsa sem á sér stað í Ráðhúsi Akureyrarbæjar undir hatti bæjarstjórn Akureyrar. Þessi farsi verður endursýndur aftur og aftur næstu fjögur árin með fjöldamörg mál sem fara sömu leið og þetta með kettina. Með meðvikrni, ódug og kaffi. Þú getur hnekkt þessu. Til að hnekkja þessu og breyta bænum til betri vegar þurfum við meirihluta atkvæða . Við þurfum atkvæði ykkar allra. Við þurfum X- K þann 14. mai. Að lokum. Þá ætlum við að lofa þér því kæri kjósandi, að hafa málin okkar brýnni þegar loka á bæjarstjórninni eftir fjögur ár en að hugsa um að loka göngugötunni eða banna lausagöngu katta. Við erum ekki á leið á fjögurra ára kaffihúsapjall með vinum okkar um ketti og aðra smávægilega hluti sem ekki skipta stórmáli. Við ætlum að vinna stóru málin fyrir alla þá sem þurfa á okkur að halda og telja að á sér sé brotið. Ungt fólk í fasteignaleit og aldraðir og öryrkjar sem engin kjör fá. Og við ætlum að vinna fyrir kisurnar okkar. Þið hin sem ekki eru nefnd hér. Segið okkur hver þið eruð og hvar þið eruð. Við skulum gera hvað við getum til að koma ykkar máli fram og í gegn. Við ætlum að vinna fyrir ykkur sem hér búa, en ekki þá sem búa hér ekki og eru mögulega að flytja hingað einhverntímann. Höfundur skipar 2. sætið á lista Kattaframboðsins á Akureyri, K listans. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Kosningar 2022 Sveitarstjórnarkosningar 2022 Akureyri Ásgeir Ólafsson Lie Mest lesið „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traustur grunnur, ný tækifæri Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Sjá meira
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir Skoðun